Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 555 e 4to

Orms þáttur Stórólfssonar ; Ísland, 1675-1699

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-7r)
Orms þáttur Stórólfssonar
Titill í handriti

Hér byrjar söguþátt af Ormi Stórólfssyni

Upphaf

Hængur hét maður, son Ketils Naumdæla …

Niðurlag

… og hélt vel trú sína

Skrifaraklausa

Hafi sá þökk sem skrifað hefur en þeir launi góðu er lesa og lagfæri ef rangt er.

Baktitill

og lýkur þar þætti Orms Stórólfssonar sterka.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
9 blöð (200-202 mm x 160 mm). Blöð 7v-9v og neðri hluti blaðs 7r eru auð.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-7. Blöð 8-9 eru ómerkt.

Kveraskipan

  • Kver I: bl. 1- 4, 4 stök blöð.
  • Kver II: bl. 5-9, 2 tvinn og stakt blað (bl. 5).

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 160-162 mm x 120-122 mm.
  • Línufjöldi er 32-34.
  • Bendistafir (v) á spássíum til að merkja vísur í texta.
  • Lok sögu enda í totu (bl. 7r).

Skrifarar og skrift

Ein hönd. Skrifari óþekktur, kansellíbrotaskrift.

Skreytingar

Titill er með stærra letri og fyrsta lína textans einnig.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Stórt J er skrifað á neðri spássíu blaðs 5r.
  • Leiðrétting á spássíu blaðs 3v.

Band

  • Band frá árunum 1772-1780 (206 mm x 165 mm x 5 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Spjaldblöð úr prentaðri bók. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til loka 17. aldar í  Katalog I , bls. 705.
  • Samkvæmt AM 477 fol. hafa auk þess verið í handritinu AM 555 4to: Úlfs saga Uggasonar, Stjörnu-Odda draumur, Þorsteins draumur Síðu-Hallssonar, Þorsteins þáttur Þorvarðarsonar, Hænsa-Þóris saga, Vatnsdæla saga - allar með hendi Ásgeirs Jónssonar (nema sú fyrsta) en þær vantar nú (sjá Kålund).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 24. nóvember 1978.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P521. apríl 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 1. nóvember 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. september 1887(sjá Katalog I 1889:705 (nr. 1374) .

Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn