Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 555 d 4to

Orms þáttur Stórólfssonar ; Danmörk, 1690-1710

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-27r (bls. 1-53))
Orms þáttur Stórólfssonar
Titill í handriti

Söguþáttur af Ormi Stórólfssyni

Upphaf

Hængur hét maður, son Ketils Naumdæla …

Niðurlag

… og hélt vel trú sína

Baktitill

og lýkur þar þætti Orms Stórólfssonar.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
28 blöð (211 mm x 163 mm). Blöð27v og 28r-v eru auð.
Tölusetning blaða

Upprunalegt blaðsíðutal 1-53. Blað 28 er ómerkt.

Kveraskipan

Sjö kver.

  • Kver I: bl. 1-4, 2 tvinn.
  • Kver II: bl. 5-8, 2 tvinn.
  • Kver III: bl. 9-12, 2 tvinn.
  • Kver IV: bl. 13-16, 2 tvinn.
  • Kver V: bl. 17-20, 2 tvinn.
  • Kver VI: bl. 21-24, 2 tvinn.
  • Kver VII: bl. 25-28, 2 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 150-158 mm x 90-95 mm.
  • Línufjöldi er 18.
  • Vísuorð eru sér um línu.

Skrifarar og skrift

Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellíbrotaskrift undir áhrifum frá fljótaskrift.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (215 mm x 169 mm x 8 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Spjaldblöð úr prentaðri bók. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.

Fylgigögn

Fastur seðill (200 mm x 164 mm) með hendi Árna Magnússonar: Orms þattr Storolfssonar ex membranâ Regiâ

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett til um 1700 í  Katalog I , bls. 704.
  • Samkvæmt AM 477 fol. hafa auk þess verið í handritinu AM 555 4to: Úlfs saga Uggasonar, Stjörnu-Odda draumur, Þorsteins draumur Síðu-Hallssonar, Þorsteins þáttur Þorvarðarsonar, Hænsa-Þóris saga, Vatnsdæla saga - allar með hendi Ásgeirs Jónssonar (nema sú fyrsta) en þær vantar nú (sjá Kålund).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. nóvember 1977.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P521. apríl 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 1. nóvember 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 23. september 1887(sjá Katalog I 1889:704-705 (nr. 1373) .

    GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Már Jónsson
Titill: Heimtur: Ritgerðir til heiðurs Gunnari Karlssyni sjötugum, Skrifarinn Ásgeir Jónsson frá Gullberaströnd í Lundarreykjadal
Ritstjóri / Útgefandi: Guðmundur Jónsson, Helgi Skúli Kjartansson, Vésteinn Ólason
Umfang: s. 282-297
Lýsigögn
×

Lýsigögn