„Njáls sögubók. Sem er einn partur af Íslendinga sögum“
„[M]örður hét maður er kallaður var gígja …“
„… er ágætastur maður hefur verið í allri þeirri ætt.“
Og endast hér nú Brennu-Njáls saga.
„Lítið inntak úr Sögu Guðmundar biskups.“
„Guðmundur biskup var fæddur á Grjótá í Hörgárdal …“
„… Var hann þá 76 ára gamall.“
Útdráttur.
Ellefu kver.
Með hendi Halldórs Guðmundssonar á Sílastöðum, norðlensks manns, blendingsskrift með smágerðu letri.
Fyrirsögn er með stærra letri, feitletruð og örlítið flúruð. Línur hafa verið dregnar yfir og undir fyrirsögn og fyrstu þrjár línur textans með rauðu bleki.
Árni Magnússon tók úr bók sem hann fékk hjá séra Jóni Torfasyni á Breiðabólstað og var komin í eigu hans 1721 (sjá seðil). Nefnd Breiðabólstaðarbók í Nials saga, Havniæ 1809, bls. 741-742.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. febrúar 1976.
Birgitte Dall gerði við og batt í nóvember 1975.
Matthías Larsen Bloch batt í pappa á árunum 1772-1780. Bandið fylgir með handritinu í öskju.