„Sagan af Keldugnúps Gunnari.“
„Þorgrímur er maður nefndur, hann bjó á bæ þeim …“
„… eður um tilburði á þeim dögum.“
Lúkum vér svo sögu af Keldugnúps Gunnari.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-16.
Þrjú kver.
Með hendi Ketils Jörundssonar í Hvammi, síðléttiskrift.
Upphafstafir eru dregnir ögn hærri en texti meginmáls.
Stafir fyrirsagna eru dregnir hærri en texti meginmáls.
Skreyting við eða umhverfis orð í stöðu griporðs.
Band frá árunum 1772-1780 (214 mm x 167 mm x 6 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Spjaldblöð úr prentaðri bók. Titlar og safnmark skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Saumað með hamptaumum.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í Katalog I, bls. 703, en virkt skriftartímabil Ketils var ca 1620-1670.
Tilheyrði áður sama handriti og AM 554 h beta 4to.
Árni Magnússon hefur fengið handritið úr bók Guðmundar Þorleifssonar í Brokey árið 1703 (sjá seðil í AM 554 h beta 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. október 1975.
Matthías Larsen Bloch batt í pappa á árunum 1772-1780.