„Ölkofra þáttur“
„Þórhallur hét maður, hann bjó í Bláskógum“
„meðan þeir lifðu“
og lýkur hér nú Ölkofra þætti.
Síðar hefur verið strikað undir orðið þáttur og skrifað fyrir framan Þáttur af.
Handritið hefur verið blaðsíðumerkt síðar 1-16.
Eitt kver, 4 tvinn.
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Lesbrigði milli lína í fyrri efnishlutanum með hendi skrifara Árna Magnússonar og sumt með hendi hans sjálfs. Tekin úr eintaki með hendi Jóns Erlendssonar í Villingaholti í eigu Ulrich Chr. Gyldenlöve (sjá seðil).
Pappaband frá árunum 1772-1780 (211 mm x 168 mm x 5 mm). Safnmark og titlar skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Fastur seðill (195 mm x 161 mm) með hendi Árna Magnússonar. Seðillinn er tvinn og þjónar sem saurblöð fremst og aftast: „Þessi Ölkofra þáttur er confereraður við hönd síra Jóns í Villingaholti í bók í folio tilheyrandi hans høj excellence herra Ulrich Chr. Guldenlewe. Sýnist annars að vera gauðrangur.“
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til síðari helmings 17. aldar í Katalog I , bls. 700.
Samkvæmt AM 477 fol. átti að vera annað eintak af Ölkofra þætti í handritinu með hendi Ásgeirs Jónssonar.
Handritið hefur verið í Gunnarsholti fyrir 1685 (bl. 1r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. nóvember 1975.
Bundið af Matthias Larsen Bloch c1772-1780.