Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 553 f 4to

Ölkofra þáttur ; Ísland, 1700-1725

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-13v)
Ölkofra þáttur
Titill í handriti

Þáttur af Ölkofra

Upphaf

Þórhallur hét maður, hann bjó á Bláskógum …

Niðurlag

… og hélst það meðan þeir lifðu.

Baktitill

Og lýkur hér sögu Ölkofra.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
14 blöð (210-212 mm x 165 mm). Blað 14 er autt.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki 1-13. Blað 14 er ómerkt.

Kveraskipan

Tvö kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-14, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 150 mm x 105 mm.
  • Línufjöldi er 19.
  • Griporð á bl. 8v.

Skrifarar og skrift

Með hendi Jóns Sigurðssonar í Víðidalstungu, kansellískrift.

Skreytingar

Upphafsstafir kafla eru feitletraðir.

Band

Band frá árunum 1772-1780 (213 mm x 168 mm x 5 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír. Saumað með hamptaumum. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð eru úr prentaðri bók.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til upphafs 18. aldar í  Katalog I , bls. 698.
  • Samkvæmt AM 477 fol. átti Harðar saga líka að tilheyra þessu handriti en hana vantar nú.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. október 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEI P53. apríl 2009 og síðar.
  • ÞS færði inn grunnupplýsingar 30. október 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 17. september 1887(sjá Katalog I 1889:699 (nr. 1355) .

Viðgerðarsaga

Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar ljósmyndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Harðar saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Hast, Sture
Umfang: 6
Lýsigögn
×

Lýsigögn