„Helgi bjóla son Ketils flatnefs nam landið á Kjalarnesi …“
„… tók eitt tré hátt í hönd sér, sneri síðan úr garði …“
„… í brögðum. Son átti hann er Grímur hét …“
„… frá Búa Andríðarsyni er komin mikil ætt.“
Og lúkum vér hér Kjalnesinga sögu.
Síðari tíma blaðmerking 1-15.
Tvö kver.
Með óþekktri hendi, kansellískrift.
Upphafsstafur pennaflúraður (bl. 1r ).
Band frá september 1976 (200 mm x 188 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk, grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Handritið liggur í öskju ásamt eldra bandi.
Eldra pappaband frá árunum 1772-1780. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Leifar af rauðu innsigli á bl. 2r.
Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
Bókina hefur átt Oddur Sigurðsson lögmaður og hefur Árni Magnússon líklega fengið hana að láni og ekki skilað (E.G.P. 1998).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 14. apríl 1977.
Birgitte Dall gerði við og batt í september 1976. Askja gerð í október 1976.
Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780. Bandið liggur með handritinu í öskju.