Handritið hefur allt verið blaðmerkt nýlega með blýanti, 1-21.
Band frá október 1992 (214 mm x 187 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk. Grófari dúkur á kili og hornum. Saumað á móttök. Saurblöð tilheyra bandi.
Gamalt pappaband frá árunum 1772-1780. Safnmark og titill skrifað framan á kápu. Blár safnmarksmiði á kili.
Laus seðill frá Kaupmannahöfn með upplýsingum um forvörslu.
Árni Magnússon fékk hjá séra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. nóvember 1992.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í október 1992.
Áður bundið af Matthíasi Larsen Bloch á árunum 1772-1780. Það band fylgir.
„Saga frá Þorsteini Víkingssyni“
„Maður er nefndur Vífill …“
„… sem honum voru samtíða.“
Lúkum vér hér nú sögu Þorsteins Víkingssonar.
„Lestu þáttinn Þorsteins …“
„… og öllum börnum hennar.“
„Endað að Kálfavík seint og illa, bið eg góðan vin að lagfæra og leiðrétta, og halda mér til góða svo bægilegt klór. Befala hann Guði. Anno 1683 d. 5. januarij. Þórður Jónsson E.h.“
Vísurnar eru ortar til lesenda handritsins.
Handritið hefur verið blaðmerkt nýlega með blýanti, 1-18.
Tvö kver.
Handritið er morkið á jöðrum en gert hefur verið við það með pappír. Texti hefur skerst á bl. 1, 9r, 17 og 18.
Með hendi Þórðar Jónssonar í Kálfavík, fljótaskrift.
Upphafsstafir kafla eru feitletraðir og pennaflúraðir; stærstir eru M á blaði 1r, Þ á 7v og N á 9v.
Handritið var skrifað á Íslandi árið 1683 af Þórði Jónssyni í Kálfavík (sjá skrifaraklausu á bl. 18v).
„Januaríus“
Brot úr almanaki á versósíðu en útreikningar á rektósíðu.
Brot úr sendibréfi til Jóns Arasonar skólameistara í Skálholti. Jón var skólameistari á árunum 1633-1636. Utanáskrift er á versósíðu.
Reikningurinn er stílaður á Jón Arason í Vatnsfirði og ársettur 1658.
Tvinn og stakt blað.
Einn dálkur.
Blöðin bera þess merki að hafa verið notuð í band. Skorið hefur verið bæði neðan af þeim og við ytri spássíu.
Óþekktir skrifarar.
Blöðin eru skrifuð á Íslandi, trúlega við Ísafjarðardjúp á árunum 1633-1636 og 1658. Þau eru tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 696.