Kom út á prenti. Sjá Broberg, S.G., Rémundar saga keisarasonar 1909-1912.
Seinni tíma blaðmerking með blýanti 1-28.
Band frá mars 1990 (220 mm x 183 mm x 12 mm). Spjöld og kjölur klædd fínofnum líndúki. Saumað á móttök. Tvö saurblöð úr bandi.
Eldra band frá c1772-1780. Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Efnisyfirlit framan á kápu. Á spjaldblöðum sést spegilmynd af prentuðu máli.
Skrifað á Íslandi.
Bl. 1-16 með hendi Steindórs Ormssonar. Kålund tímasetti allt handritið til 17. aldar ( Katalog (I) 1889: 682).
Þegar Árni Magnússon fékk handritið voru AM 630 4to og AM 779 c II 4to í sömu bók.
Árni Magnússon keypti af Jórunni Jónsdóttur í Ytri-Hjarðardal í Önundarfirði, konu Jóns Steindórssonar yngri 1710.
Stofnun Árna Magnússonar tók við handritinu 16. mars 1990.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í mars 1990. Eldra band fylgir.
Matthías Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
„Sagan fra Riemundi keisara | syne“
„Þad er vpphaf a þessare frasogu ad eirnn agiætr keisari ...“
„... langa stund, að hvárr minniz við annan við hjartaligri ást ...“
Upprunalega handritið (bl. 1-16) endar í 43. kafla en þá er fyllt upp með innskotsblöðum (bl. 17-28) (sjá hér fyrir neðan).
Seinni tíma blaðmerking með blýanti 1-16.
Þrjú kver:
Eiginhandrit Steindór Ormsson, blendingsskrift, undir áhrifum kansellískriftar.
Upphafsstafir dregnir stærra (3 línur) og oft með örlitlu pennaflúri.
Fyrirsagnir og fyrsta lína eru skrifuð með kansellískrift.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
„... langa stund, að hvárr minniz við annan við hjartaligri ást ...“
„... hafe sa þøck er las og sa er skrifade og aller þeir tilhlÿda, Geÿme vor nu allra Gud j himerÿke. Amen.“
Upprunalega handritið (bl. 1-16) endar í 43. kafla en þá er fyllt upp með innskotsblöðum (bl. 17-28) sem inniheldur lok sögunnar.
Vatnsmerki 1: Aðalmerki: Dárahöfuð (bl. 18, 19, 22, 23, 26, 27 ).
Mótmerki: Fangamark (bl. 20, 24, 28 ).
Seinni tíma blaðmerking með blýanti 17-28.
Eitt kver:
Ein hönd, óþekktur skrifari, léttiskrift.
Upphafsstafir dregnir stærra (1-2 línur) og oft með örlitlu pennaflúri.
Fyrirsagnir og fyrsta lína eru skrifuð með kansellískrift.
Ígildi bókahnútar (28v).