„Sagan af Maguse Jarle og þeim Amunda sonum“
Með tilheyrandi þáttum.
Vatnsmerki 1: Aðalmerki: Meðalstórt dárahöfuð með sjö bjöllum á kraga (bl. 1, 3, 6, 8 ).
Vatnsmerki 2: Aðalmerki: Lilja og hjarta (bl. 35, 36, 37, 40 ).
Blaðsíðumerking með brúnu bleki á efri spássíu 1-81, síðari tíma viðbót.
6 kver:
Ein hönd, Jón Þórðarson, fljótaskrift og kanellískrift. Skrifaði hluta af AM 345 4to.
Upphafsstafir skreyttir með blómamynstri og laufblöðum, ca 10 línur.
Aðrir upphafstafir eru minni (2-3 línur), en skreyttir, fyrir utan blóm og laufblöð, þá eru andlit með skegg í "Þ" og "N".
Á neðri spássíu á bl. 25r er blekteikning, maður með hatt og yfirvaraskegg.
Skreyting við eða umhverfis griporð.
Nótnaskrift á bókfelli í bandi.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótnaskrift.
Fastur seðill (158 mm x 132 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „Mágus saga. Úr bók er ég fékk af Markúsi Bergssyni og tók í sundur. Er fín.“
Jón Jónsson erfði safn handrita, sem þetta handrit var hluti af, eftir föður sinn Jón Þórðarson. Árið 1710, gaf Markús Bergsson stærra handrit til Árna Magnússonar, sem endurraðaði því. Það er ekki vitað hvernig handritið kom til Markúsar Bergssonar, en í athugasemdum sínum, nefnir Árni að Sigmundur Sæmundsson er sagður hafa verið fyrri eigandi. (Sjá AM 435 a 4to, bl. 82r).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 22. nóvember 1982.