„Hier hefſt saga af kyr|ie lax“
„ ok vid hliota ad koma þessa sǫgu.“
Niðurlag vantar.
Nokkur auð blöð aftast til að tákna eyðu í texta. Neðri helmingur bl. 54r auður og allt 54v.
Nótnaskrift á bókfelli í eldra bandi.
Leiðréttingar víða í handritinu með hendi skrifara Árna Magnússonar.
Band frá 16. október 1992.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótnaskrift.
Fastur seðill (sem er reyndar tvinn, þar sem aftara blað er autt) (190 mm x 147 mm): „Þetta exemplar er ritað eftir því sem útskorið var úr bók Þorsteins Björnssonar á Setbergi. Það sama exemplarið (sem þetta var eftir skrifað, var í folio) sendi ég 1710 í febrúar norður að Hólum í Hjaltadal því fólki til eignar. Í síra Þorsteins exemplar, ad caput 7 pag. n. circeter 19 var uppmálað eitt dýr, sem er maður ofan að mitti, en að endann naut með klaufum og þar hjá skrifað þetta nafn: Homocentaurus. Ad idem caput 7 var uppdregið völundarhús og þar hjá skrifað: Domus Dedali. Völundarhús[ið] skyldi heyra til pag. n. 20. Ad caput pag. n. 43 voru uppdregnar 5 manna effigies, eftir þeirra description, sem hér stendur i Kapítulanum. Hið allra síðasta af sögunni var, og við hljóta að koma þessa sögu, mun hér svo vanta aftan við.“
Handritið er tímasett um 1700 í Katalog I , bls. 679.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. apríl 1993.
Viðgert af Rannver Hannessyni í Havnegade.
Bundið af Mette Jacobsen. Eldra band fylgir.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.