„Sagan af Flöres konge og sonum hans“
„Saga af Artus Konge og hans syne | Samſone fagra“
„Sagann af Vilhialme Siod er fundeſt | ſkal hafa J Babilon og ſamſett | af Homero“
„Sagann af Saulus og Nicanor“
„Saga af Haldane eyſteynſyne“
Einungis upphaf sögunnar og blað límt yfir.
„Hier byriaſt Blömſtur valla saga“
Á eftir sögunum er skrá yfir 16 sögur ſem j Bokenne eru ſkrifadar, en það á þó ekki við um þetta handrit, því einungis Blómsturvalla saga er nefnd.
Límt yfir bl. 116v.
Ein hönd. Bl. 133-137 þó með annarri hendi.
Ekki hefur verið fyllt í reiti fyrir upphafsstafi og fyrirsagnir nema á bl. 16v og 24v, þar sem eru leifar af rauðum lit í upphafsstöfum, og á bl. 27v og 36v, þar sem er síðari tíma pennakrot.
Nótnaskrift á bókfelli í eldra bandi.
Band frá því í júlí 1976.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti (tvídálka) með nótnaskrift.
Fastur seðill (98 mm x 143 mm): „Saga Flóres konungs og sona hans. pag. 1-39. Saga Samsonar fagra p. 40-76. Saga Vilhjálms sjóðs p. 77-165. Saga Sálus og Nikanórs pag. 165-231. Blómsturvalla saga pag. 233.“
Með hendi Jóns Gissurssonar og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 677, en virkt skriftartímabil Jóns var á árunum 1610-1648.
Eyðufyllingar með hendi Árna Magnússonar
Handritið virðist samsett úr mörgum hlutum, upprunalega sjálfstæðum.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. september 1976.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1976.
Eldra band fylgir og viðgerðaræmur Árna Magnússonar lausar hjá.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.