Skráningarfærsla handrits

AM 527 4to

Riddarasögur ; Ísland, 1610-1648

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-20r)
Flóres saga konungs og sona hans
Titill í handriti

Sagan af Flöres konge og sonum hans

2 (20r-38v)
Samsons saga fagra
Titill í handriti

Saga af Artus Konge og hans syne | Samſone fagra

3 (39r-83r)
Vilhjálms saga sjóðs
Titill í handriti

Sagann af Vilhialme Siod er fundeſt | ſkal hafa J Babilon og ſamſett | af Homero

4 (83r-116r)
Sálus saga og Nikanórs
Titill í handriti

Sagann af Saulus og Nicanor

5 (116v)
Hálfdanar saga Eysteinssonar
Titill í handriti

Saga af Haldane eyſteynſyne

Athugasemd

Einungis upphaf sögunnar og blað límt yfir.

6 (117r-137v)
Blómsturvalla saga
Titill í handriti

Hier byriaſt Blömſtur valla saga

Athugasemd

Á eftir sögunum er skrá yfir 16 sögur ſem j Bokenne eru ſkrifadar, en það á þó ekki við um þetta handrit, því einungis Blómsturvalla saga er nefnd.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
137 blöð ().
Umbrot

  • Leturflötur er að meðaltali 178 mm x 138 mm. Hæð og breidd leturflatar er óregluleg, ekki aðeins vegna mismunandi blaðstærðar, heldur einnig á jafnstórum blöðum. Hæð getur verið frá 171 til 187 mm og breidd frá 132 til 154 mm.
  • Línufjöldi er óreglulegur, frá 24 til 39 lína.
  • Síðutitlar á bl. 1r, 3r, 11r, 22v, 27r, 35v, 38r, 44r, 45r, 48v.
  • Auðir reitir fyrir upphafsstafi og fyrirsagnir.

Ástand

Límt yfir bl. 116v.

Skrifarar og skrift

Ein hönd. Bl. 133-137 þó með annarri hendi.

Skreytingar

Ekki hefur verið fyllt í reiti fyrir upphafsstafi og fyrirsagnir nema á bl. 16v og 24v, þar sem eru leifar af rauðum lit í upphafsstöfum, og á bl. 27v og 36v, þar sem er síðari tíma pennakrot.

Nótur

Nótnaskrift á bókfelli í eldra bandi.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Víða eyðufyllingar með hendi Árna Magnússonar.
  • Árni bætir við efnisyfirliti á fremra spjaldblað.

Band

Band frá því í júlí 1976.

Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti (tvídálka) með nótnaskrift.

Fylgigögn

Fastur seðill (98 mm x 143 mm): Saga Flóres konungs og sona hans. pag. 1-39. Saga Samsonar fagra p. 40-76. Saga Vilhjálms sjóðs p. 77-165. Saga Sálus og Nikanórs pag. 165-231. Blómsturvalla saga pag. 233.

Uppruni og ferill

Uppruni

Með hendi Jóns Gissurssonar og tímasett til 17. aldar í  Katalog I , bls. 677, en virkt skriftartímabil Jóns var á árunum 1610-1648.

Eyðufyllingar með hendi Árna Magnússonar

Handritið virðist samsett úr mörgum hlutum, upprunalega sjálfstæðum.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. september 1976.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 677 (nr. 1304). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 188?. ÞS skráði 28. nóvember 2001.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1976.

Eldra band fylgir og viðgerðaræmur Árna Magnússonar lausar hjá.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: , Late Medieval Icelandic romances II: Saulus saga ok Nikanors. Sigurðar saga Þogla
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: 21
Titill: , Late Medieval Icelandic romances IV: Vilhjálms saga sjóðs. Vilmundar saga viðutan
Ritstjóri / Útgefandi: Loth, Agnete
Umfang: 23
Titill: , Samsons saga fagra
Ritstjóri / Útgefandi: John Wilson
Umfang: 65
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Athuganir Árna Magnússonar um fornsögur, Gripla
Umfang: 4
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Kalinke, Marianne E.
Titill: Scribes, editors, and the riddarasögur, Arkiv för nordisk filologi
Umfang: 97
Lýsigögn
×

Lýsigögn