„Hier hefur Bærinngs | Søgu enns Fagra Riddara“
„Hier hefur saga | af Konräd keyſaraſyne …“
Á bl. 82v er upphaf efnisþáttar undir yfirskriftinni: Innbirdiz lid og adſtod, límt var yfir hann en blaðið hefur verið fjarlægt.
„Walldimars Saga“
Efst á bl. 83r er upprunalega niðurlagið Hróa þáttar heimska, sem er varðveittur í AM 587 a 4to. Strikað er yfir textann en blaðsnepill hefur áður verið límdur yfir hann og síðar fjarlægður.
Einungis upphaf kvæðisins, sem skrifari bætti við til að eigandinn fengi ekki óskrifuð blöð með handritinu (sjá fyrirsögn). Kvæðið er varðveitt í AM 723 b II 4to. Seðill var límdur yfir kvæðið en síðar fjarlægður.
Eyða fyrir upphafsstaf á bl. 53r.
Ein hönd, hálfléttiskrift.
Árni Magnússon bætir við efnisyfirliti á fremra spjaldblað.
Spjöld og kjölur klædd skinni.
Á fremra spjaldblaði stendur með hendi Árna Magnússonar: „Bærings saga fagra pag. 1. Konráðs saga Keisarasonar pag. 105. Valdimars saga.“
Með hendi Jóns Erlendssonar og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 676, en virkt skriftartímabil Jóns var á árunum 1625-1672.
Handritið var áður hluti af stærri bók sem innihélt einnig AM 509 4to, AM 551 b 4to, AM 587 a 4to og AM 723 b II 4to.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. nóvember 1988.
Gert við í Kaupmannahöfn í júlí 1988.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.