Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 511 4to

Víglundar saga ; Ísland, 1620-1670

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-22r)
Víglundar saga
Titill í handriti

Saga af Víglundi

Upphaf

Haraldur kóngur hárfagri, sonur Hálfdanar svarta, var einvaldsherra yfir Noregi …

Niðurlag

… en Trausti að Ingjaldshóli eftir föður sinn.

Baktitill

Og lýkur hér þessa sögu.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
i + 22 + i blöð (210-213 mm x 162-165 mm). Blað 22v er autt og neðri hluti blaðs 22r.
Tölusetning blaða

Upprunaleg blaðsíðumerking 1-43.

Kveraskipan

Þrjú kver.

  • Kver I: bl. 1-8, 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 17-22, 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 175-183 mm x 130-135 mm.
  • Línufjöldi er 24-25.
  • Kaflatal á spássíum.
  • Síðustu orð á síðu hanga víðast hvar undir leturfleti.

Skrifarar og skrift

Með hendi séra Ketils Jörundssonar, síðléttiskrift.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Lesbrigði eru víða með sömu hendi.
  • Árni Magnússon bætir við á bl. 1r: al: af Þorgrími prúða og Víglundi.
  • Á nokkrum stöðum hefur verið sett X á spássíu og strikað undir texta (sjá t.d. bl. 15r og 18v-20r).

Band

Band frá árunum 1880-1920 (215 mm x 170 mm x 8 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi.

Eldra band var með bókfellsklæðningu úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600, með brotum úr Mannhelgi.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til 17. aldar í  Katalog I , bls. 670, en virkt skriftartímabil Ketils Jörundssonar var ca 1620-1670.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. október 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • ÞS jók við skv. reglum TEI P5 16.-18. febrúar 2009 og síðar.
  • ÞS endurskráði 8. mars 2002.
  • ÓB færði inn grunnupplýsingar 3. október 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 28. júní 1887 (sjá Katalog I 1889:670 (nr. 1283) .

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Ohlsson, Tove Hovn
Titill: Seks papirstrimler i AM 578 g 4to,
Umfang: s. 327-342
Lýsigögn
×

Lýsigögn