„Saga af Vémundi og Vígaskúta“
„Þorsteinn höfði hét maður …“
„… að fara til Ölvis hins …“
Niðurlag hefur upprunalega vantað í handritið og hefur líklega verið svo í forriti þess. Niðurlagi sögunnar hefur verið bætt við á bl. 72r-v.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-72.
Leturflötur hefur dökknað og blek smitast í gegn, texti er þó skýr.
Bl. 1-71r með óþekktri hendi, fljótaskrift.
Bl. 72r með hendi Árna Magnússonar, árfljótaskrift.
Bl. 72v með hendi skrifara Árna Magnússonar, fljótaskrift.
Band frá árunum 1880-1920 (200 mm x 164 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum. Safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi.
Eldra band var með bókfellsklæðningu úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600, með brotum úr Mannhelgi.
Handritið var skrifað á Íslandi. Það er tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 669.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júlí 1975.