„Kjalnesinga saga“
Skrifað eftir Vatnshyrnu.
„[H]elgi bjóla son Ketils flatnefs nam Kjalarnes …“
„… er komin mikil ætt.“
Lúkum vér þar Kjalnesinga sögu.
Með hendi Ásgeirs Jónssonar, kansellíbrotaskrift undir áhrifum frá fljótaskrift.
Árni Magnússon bætti við titli.
Band frá árunum 1880-1920 (219 mm x 168 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd pappír með dökkbláu og brúnleitu marmaramynstri. Dökkur líndúkur á kili og hornum.
Saurblöð tilheyra bandi.
Eldra band úr bókfelli úr Jónsbókarhandriti frá því um 1600, en á því eru varðveitt brot úr Erfðatali.
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn. Það er tímasett frá hausti 1686 til hausts 1688 í umfjöllun Más Jónssonar um skrifarann Ásgeir Jónsson (sbr. Már Jónsson 2009: 282-297 ) og til um 1700 í Katalog I , bls. 667, en virkt skriftartímabil Ásgeirs Jónssonar var 1686-1707.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. september 1975.
VH lagfærði í nóvember 2010.
ÞS skráði skv. reglum TEI P5 6.-9. febrúar 2009 og síðar.
ÞS færði inn grunnupplýsingar 7. ágúst 2001.
Kålund gekk frá handritinu til skráningar 24. júní 1887(sjá Katalog I 1889:668 (nr. 1275) .