Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 492 4to

Sögubók ; Íslandi

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-34v)
Kjalnesinga saga
Titill í handriti

Hér byrjar Búa sögu. 1. kapituli.

Upphaf

[H]elgi bjóla son Ketils Flatnefs …

Niðurlag

… og er mikil ætt frá hönum komin.

Baktitill

Og endar þar með Kjalarnesinga sögu.

2 (35r-42v)
Jökuls þáttur Búasonar
Titill í handriti

Þáttur Jökuls Búasonar hins frækna

Upphaf

[Þ]að er af þessum Jökli að segja …

Niðurlag

… og lýkur hér frá hönum að segja.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír.
Blaðfjöldi
ii + 43 + i blöð (199 mm x 160 mm). Blað 42v er autt að mestu; blað 43 er autt.
Tölusetning blaða

  • Blaðmerking 1-42.

Kveraskipan

Fimm kver.

  • Kver I: blöð 1-8; 4 tvinn.
  • Kver II: blöð 9-16; 4 tvinn.
  • Kver III: blöð 17-24; 4 tvinn.
  • Kver IV: blöð 25-32; 4 tvinn.
  • Kver V: blöð 33-43; 5 tvinn + 1 stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 150 mm x 115 mm.
  • Línufjöldi er ca 20-21.
  • Strikað hefur verið fyrir innri og ytri spássíu með þurroddi.
  • Kjalnesinga saga er kaflaskipt: i-viii.
  • Griporð eru á verso-hlið blaða (sjá t.d. blöð 1v og 4v).
  • Eyður eru fyrir upphafsstafi í upphafi Kjalnesinga sögu og Jökuls þáttar Búasonar (sjá blöð 1r og 35r).

Ástand

  • Texti sést sums staðar í gegn og blek hefur smitast úr stöfum. Pappírinn er því dekkri á leturfleti en á spássíu. Þetta kemur þó ekki niður á læsileika handrits (sjá t.d. blað 21r).

Skrifarar og skrift

Nótur

  • Nótur á bókfelli í eldra bandi.

Band

Band (200 null x 170 null x 15 null) er frá 1880-1920.

  • Spjöld eru klædd dökkbláum brúnyrjóttum pappír. Strigi er á kili og hornum.

  • Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti með nótum.  

Fylgigögn

  • Seðill (173 mm x 137 mm) á fremra saurblaði 2v með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um uppruna og feril: Þesse Buasaga med Jokulsþætte kom til min 1727. fra Magnuse Einarssyne ä Vatzhorne. Er af honum ritud epter hendi Sr Jons Erlendzsonar i Villngahollte, i Bok Jons Hakonarsonar, þeirre in folio, sem fyrrum hefur ätt Mag. Byrniolfur, og gefed Helgu Magnusdottur i Brædratungu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til um 1700 í  Katalog I , bls. 663.

Það er afrit af fólíóhandriti með hendi Jóns Erlendssonar, í eigu Jóns Hákonarsonar. Fólíóhandritið átti fyrrum Brynjólfur Sveinsson biskup en hann gaf það síðar Helgu Magnúsdóttur í Bræðratungu (sbr. seðil).

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið frá Magnúsi Einarssyni á Vatnshorni árið 1727 (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 15. september 1975.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • VH skráði handritið 29. maí 2009,
  • GI skráði 29. janúar 2002.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 20. júní 1887. Katalog I> , bls. 663-664 (nr. 1264). GV sló inn texta af seðlum Árna Magnússonar undir umsjón ÞS og með hliðsjón af gögnum frá MJ.

Viðgerðarsaga

Bundið af Otto Ehlert á árunum 1880-1920.

Myndir af handritinu

  • Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Guðvarður Már Gunnlaugsson
Titill: Leiðbeiningar Árna Magnússonar, Gripla
Umfang: 12
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Höfundur: Andersen, Merete Geert
Titill: Colligere fragmenta, ne pereant,
Umfang: s. 1-35
Lýsigögn
×

Lýsigögn