„Saga af Þórði hreðu“
„Þórður hét maður son Hörða-Kára …“
„… höfum vér ekki heyrt fleira af honum með sannleika sagt.“
Og lýkur hér nú sögu Þórðar hreðu.
Sex kver.
Skrifari er ókunnur (fljótaskrift). Blað 1 er með hendi Árna Magnússonar (fljótaskrift) og blöð 2r-4v með hendi ónafngreinds skrifara hans (kansellískrift).
Band (214 mm x 168 mm x 13 mm) er frá 1911-1913.
Spjöld eru klædd mislitum pappír, bókfell er á kili.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu handriti.
Handritið er skrifað á Íslandi og er tímasett til síðari hluta 17. aldar í Katalog I , bls. 656.
Áður var handritið hluti af stærri bók (nr. XV 4to í safni Þormóðs Torfasonar) sem Árni Magnússon tók í sundur 1721. Í henni voru: AM 562 g 4to, AM 588 h 4to, AM 408 c 4to, AM 473 4to og AM 1 d beta fol. Að auki voru í henni Krukkspá, brot framan af Víglundar sögu og aftan af Stjörnu Odda draumi. Árni segir bindið svo að segja ónýtt og grei hendur, ókunnugar á flestu (sbr. AM 435 b 4to).
Árni Magnússon fékk handritið hjá ekkju Þormóðs Torfasonar 1720 (sbr. seðil). Á honum eru upplýsingar um feril.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. apríl 1975.
VH skráði handritið 14. apríl 2009; lagfærði í desember 2010, GI skráði 20. desember 2001, Kålund gekk frá handritinu til skráningar 11. júní 1887. Katalog I; bls. 656 (nr. 1245).