Skráningarfærsla handrits
AM 456 4to
Skoða myndirSögur og kvæði; Ísland, 1690-1710
Innihald
„Hér byrjast saga af Eigli Skallagrímssyni. 1. kap.“
„Úlfur hét maður kynstór, sonur Bjálfa …“
„… og kom margt manna frá honum. Og lýkur þar þessari frásögu.“
65 kaflar.
„Hér byrjast saga af Króka-Ref.“
„Á dögum Hákonar konungs Aðalsteinsfóstra … “
„… og er margt göfugra manna af honum komið. “
„Og lúkum vér hér sögu Króka-Refs.“
Hákonardrápa Varða gims sem gjörði
„Varða gims sem gjörði …“
„… raftar) varð að kasta.“
Ein vísa úr kvæðinu.
Háttatal
„Refhvörf Snorra Sturlusonar“
„Sigs glóðar ver sækir …“
„… reiður, glaður, frómum meiðum.“
Vísa 17.
Lýsing á handriti
Upprunaleg blaðsíðumerking 1-199.
Þrettán kver.
- Kver I: blöð 1-8, 4 tvinn + 1 bis-blað.
- Kver II: blöð 9-16, 4 tvinn.
- Kver III: blöð 17-24, 4 tvinn + 1 bis-blað.
- Kver IV: blöð 25-32, 4 tvinn.
- Kver V: blöð 33-40, 4 tvinn.
- Kver VI: blöð 41-48, 4 tvinn.
- Kver VII: blöð 49-56, 4 tvinn.
- Kver VIII: blöð 57-64, 4 tvinn.
- Kver IX: blöð 65-72, 4 tvinn + 1 bis-blað.
- Kver X: blöð 73-80, 4 tvinn.
- Kver XI: blöð 81-84, 2 tvinn.
- Kver XII: blöð 85-92, 4 tvinn.
- Kver XIII: blöð 93-99, aftara saurblað, 4 tvinn.
- Blöð 1r-98v eru skrifuð af Magnúsi Magnússyni í Hvammi (sbr. Jón Ólafsson í AM 477 fol.), fljótaskrift.
- Vísurnar á blöðum 98v-99r eru skrifaðar af óþekktum skrifara, kansellískrift.
- Fyrsta lína kafla og fyrirsagnir eru með stærra og settara letri en meginmálið (sjá t.d. blöð 1r-2r).
Nótur á bókfelli í eldra bandi.
- Athugagrein eiganda er neðst á aftara saurblaði (sjá um feril).
Band (200 mm x 160 mm x 25 mm) er frá 1911-1913. Spjöld eru klædd pappír, bókfell er á kili, með leifum úr eldra bandi.
Spjöld og kjölur í eldra bandi klædd bókfelli úr latnesku helgisiðahandriti með nótum.
- Einn fastur seðill (182 mm x 99 mm) með hendi Árna Magnússonar er fremst. Á honum eru upplýsingar um eiganda: „fannst epter sal. Þord Magnusson.“
- Tveir lausir miðar með upplýsingum um forvörslu bands.
Uppruni og ferill
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til ca 1700 í Katalog I; bls. 647.
Þórður Magnússon fékk bókina í Hvammi í Hvammssveit árið 1720 (sbr. aftara saurblað). Árni Magnússon segir hana hafa fundist eftir lát hans (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 30. september 1990.
Aðrar upplýsingar
Athugað í september 1991.
Bundið af Otto Ehlert á árunum 1911-1913.
- Stafrænar myndir á www.sagnanet.is.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Notaskrá
Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
---|---|---|---|
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Michael Chesnutt | Egils saga Skallagrímssonar. Bind III. C- redaktionen, | 2006; 21 | |
Egils saga Skallagrímssonar, tilligemed Egils större kvad, | ed. Finnur Jónsson | 1886-1888; 17 |