„Hier Byriar Eyrbyggiu Edur Þornesinga | Sỏgu“
„Sagan Af Gunnare KiellduGnvps Fifle“
„Sagan Af Hrafnkiele Goda Sonar Hallfredar Land|näms Manns“
Bl. 48v autt.
Blaðsíðumerkt 114-209.
Ein hönd, Brynjólfur Jónsson á Efstalandi.
Fjöldi spássíugreina og leiðréttinga með hendi Þormóðs Torfasonar.
Spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
Skrifað af Brynjólfi Jónssyni á Efstalandi. Tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 639. Hefur, eftir því sem blaðsíðutal segir til um, áður verið hluti af stærri bók. Í þeirri bók virðist einnig hafa verið AM 463 4to, skrifað 1664 með sömu hendi, sem Árni Magnússon telur einnnig vera á hluta úr Sturlunga sögu í AM 449 4to, Göngu-Hrólfs sögu í AM 587 c 4to og sögum úr AM 342 4to (sbr. AM 435 b 4to, bl. 17v og 18 (bls. 78-79 í prentaðri útgáfu)).
Bókin sem handritið tilheyrði var nr. XVI 4to í safni Þormóðs Torfasonar.
Afhendingu frestað.
Í láni vegna rannsókna á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn frá 18. apríl 1997.