„Illt er á jörð oforðið, aldur bölvar mjög skáldi …“
„… Og lýkur hér nú sögu Víga-Glúms Eyjólfssonar. Njóti sá er nam, heilir þeir er hlýddu.“
„Hér byrjast saga af Eyrbyggjum“
„Ketill flatnefur hét einn ágætur hersir í Noregi … “
„… og lúkum vér svo þessari sögu, þeirra Þórsnesinga, Eyrbyggja og Álftfirðinga.“
„Hér byrjast saga af Laxdælum.“
„Ketill flatnefur hét maður, hann var son Bjarnar bunu …“
„… Þorkell Gellisson var hið mesta nytmenni og var sagður manna fróðastur.“
Þannig enda sögur Laxdælu af Z-flokki (sbr. Einar Ólafur Sveinsson, Íslenzk fornrit V, 1934, ) auk þess sem þar fylgja frekari lyktir:Og lýkur þar nú sögunni. Bollaþáttur sem hér fylgir án fyrirsagnar er í handritum af M- og V-flokki, skv. sömu heimild.
„Í þann tíma er Bolli Bollason bjó í Tungu …“
„… Bolli bjó í Tungu til dauðadags og höfum vér ei heyrt þessa sögu lengri. Endir.“
Fimmtán kver.
Með hendi sr. Ólafs Gíslasonar; fljótaskrift.
Band (210 null x 195 null x 33 null) er frá september 1976.
Pappaspjöld eru klædd fínofnum striga, grófari strigi á hornum og kili. Saumað á móttök. Ytri saurblöð tilheyra þessu bandi.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti frá því um 1200.
Handritið er skrifað á Íslandi og tímasett til ca 1675-1700, en til 17. aldar í Katalog I , bls. 638.
Handritið var áður hluti af stærri bók sem í voru (í þessari röð): AM 552 f 4to, AM 564 b 4to, AM 552 e 4to, AM 552 a 4to, AM 552 i 4to, AM 591 f 4to, AM 552 d 4to, AM 552 o 4to, AM 565 a 4to, AM 565 b 4to, AM 441 4to, AM 552 k alfa 4to, AM 591 c 4to, AM 591 d 4to, AM 591 h 4to og AM 459 4to (Loth, A. 1960).
Árni Magnússon fékk handritið úr bók frá séra Ólafi Gíslasyni á Hofi í Vopnafirði (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 1. apríl 1977.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í september 1976. Eldra band fylgdi.