Skráningarfærsla handrits
AM 420 b 4to
Skoða myndirLögmannsannáll; Ísland, 1362-1390
Innihald
Lýsing á handriti
Síðari tíma blaðmerking 1, 1bis -10.
Blöð eru saumuð á móttök í kverum eða stök; tvö kver, þrjú stök blöð:
- Kver I: blöð 1, 1bis-4, 2 tvinn + 1 stakt blað.
- Blað 5: 1 stakt blað.
- Kver II: blöð 6-8, 1 tvinn + 1 stakt blað.
- Blað 9: 1 stakt blað.
- Blað 10: 1 stakt blað.
Skinnið í handritinu er fremur illa farið. Blettir, göt og sprungur einkenna flest blöðin:
- Af blaði 1 er einungis varðveittur strimill af efri hluta þess næst kili.
- Blað 1bis er illa farið við ytri spássíu.
- Göt eru hér og þar, t.d. á blöðum 1bis, 5-6 og 10.
- Á blaði 6 er viðgert gat við efri kantinn og skerðir það texta.
- Myglublettir eru á flestum blöðum (sjá t.d. blöð 4r-5v).
- Stór dökkur blettur sem nær yfir hluta af innri dálki að kili, smitast í gegnum allt handritið; hann er greinilegastur í handritinu miðju (sjá t.d. blöð 5v-6r). Fleiri slíkir smitblettir eru til staðar; annar minni er t.d. fyrir miðju við ytri jaðar blaða.
- Tvídálka.
- Leturflötur blaðs er ca 280-290 mm x 205-220 mm (hvor dálkur ca 90-120).
- Línufjöldi á fullskrifuðum blöðum er á bilinu ca 44-56.
- Á blöðum 1-4 er stafapar fyrir framan hverja línu í dálki. Þessi stafapör eru hluti af táknum rímfræðinnar þar sem árin eru merkt á sérstakan hátt eftir því á hvaða vikudegi þau hefjast.
- Víða eru óútfylltar eyður sem skrásetjari skilur hugsanlega eftir fyrir óskráða atburði, sbr. t.d. á blaði 1bisr-v.
- Blöð 1-9 eru með hendi Einars Hafliðasonar; árléttiskrift, textaskrift er á fyrirsögnum.
- Blað 10 er með annarri hendi; árléttiskrift.
- Fyrirsagnir eða efni sem ætlað er að draga fram skil í textanum er með textaskrift og stærra letri en meginefnið. Það á einnig við um stafapörin (sjá umbrot).
Band (340 mm x 285 mm x 22 mm) er frá mars 1973.
Spjöld eru klædd fínofnum striga, leður er á hornum og kili. Saurblöð tilheyra þessu bandi.
- Laus seðill með upplýsingum um forvörslu bands.
Uppruni og ferill
Handritið er skrifað á Íslandi og að mestu með hendi séra Einars Hafliðasonar á Breiðabólstað í Vesturhópi (blöð 1r-9v (sjá um hendur hér fyrr)), og er uppskrift hans tímasett til ca 1362-1380, en blað 10r-10v til ca 1380-1390 (sjá ONPRegistre, bls. 453). Í Katalog I, bls. 625, er handritið tímasett til síðari hluta 14. aldar.
Árni Magnússon fékk handritið frá Jóni Vídalín biskupi, en þá hafði það lengi legið í Skálholti og eigendasaga þess óviss (sbr. athugasemd í AM 435 a 4to). Um annálana í AM 420 a-c segir Árni Magnússon í AM 435 a 4to: „Þessi 3. annála volumina, eða fragmenta, láu í Skálholti eftir mag. Þórð og höfðu þar legið um hans tíð. Er óvíst hvert þau hafa verið kirkjunnar eign, eða óvart eftir orðið af bókum mag. Brynjólfs, í eigu Skálholts registri standa þau. Ég fékk þau af mag. Jóni Vídalín“. Sjá einnig athugasemdir á seðlum í AM 428 4to. Sömuleiðis á seðlum í AM 427 a 4to.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 7. apríl 1976.
Aðrar upplýsingar
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í mars 1973. Eldra band fylgdi ekki.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
- Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen 7. júlí 1972.