Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 415 4to

Landafræði ; Ísland, 1310

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r)
Samtíningur
Athugasemd

Brot.

Meðal efnis: Latneskt hexametursvers um heimsaldrana átta, latneskur listi yfir konur þær er voru í örkinni, latneskt trúarvers, latnesk skýring við röð bókstafa sem ſpamaðr eınn ıróma skrifaði.

Tungumál textans
Latin
2 (1v-2r)
Íslenskt fjarðatal
Athugasemd

Óheilt, vantar bæði framan og aftan af.

Á undan fjarðatalinu virðist hafa verið latnesk upptalning á dýrahljóðum. Á eftir fjarðatalinu hefur fylgt upptalning á latneskum töluheitum. Á bl. 2v eru einnig leifar af latnesku efni, hugsanlega minningarversi.

Tungumál textans
isl
3 (3r-4r)
Páfatal
Athugasemd

Páfatalinu hefur upphaflega lokið með Nikulási IV. (1288-92), en fjórum næstu páfum hefur verið bætt við síðar.

Tungumál textans
isl
Efnisorð
4 (4v-6r)
Um stjörnubókarfræði
Athugasemd

Meðal efnis er skýringarmynd af sólkerfinu með tveimur sammiðja hringum og latneskum skýringum.

Tungumál textans
isl
5 (6v)
Stjörnu-Odda tal
Tungumál textans
isl
6 (7r-11r)
Annales vetustissimi
Athugasemd

Annáll frá fæðingu Krists til 1313. Árunum 1001-1269 hefur verið sleppt eða þau fallið brott.

Meirihluti 9r er nýttur fyrir sagnfræðilegar, landfræðilegar og talnafræðilegar smágreinar á íslensku (heimsaldrarnir, ætt Abrahams, um lengdarmælingar, ummál jarðar, samanburður á tylpt siafar og erlendum mælieiningum, skipting Grikklands, rúmfræði hrings, þvermál jarðar og sólar).

Meirihluti bl. 11r hefur upprunalega verið auður.

Tungumál textans
isl
Efnisorð
7 (11v)
Norsk-íslensk biskupa- og ábótatöl
Athugasemd

Erkibiskupatal í Niðarósi, biskupatal í Noregi, Orkneyjum, Færeyjum, Íslandi og Grænlandi. Ábótatal á Íslandi.

Tungumál textans
isl
Efnisorð
8 (11v)
Langfeðgatal Noregskonunga
Athugasemd

Frá Ragnari loðbrók til Hákonar Magnússonar.

Tungumál textans
isl
Efnisorð
9 (11v)
Fylkjanöfn í Noregi
Tungumál textans
isl
10 (11v-12r)
Langfeðgatal Danakonunga
Athugasemd

Frá Ragnari loðbrók til Eiríks Eiríkssonar (Menved).

Tungumál textans
isl
Efnisorð
11 (12r)
Langfeðgatal Svíakonunga
Athugasemd

Frá Ragnari loðbrók til Birgis Magnússonar.

Tungumál textans
isl
Efnisorð
12 (12r)
Langfeðgatal frá Nóa til vorra konunga
Titill í handriti

Langfeðga tal fra noa tıl varra konunga

Tungumál textans
isl
Efnisorð
12.1
Enginn titill
Athugasemd

Langfeðgatal Haralds hárfagra aftur til Nóa.

12.2
Enginn titill
Athugasemd

Langfeðgatal Hörða-Knúts, sonar Sigurðar orms-í-auga, aftur til Óðins.

13 (12r-12v)
Gesta Hammaburgensis Ecclesiae Pontificum
Titill í handriti

hamborgar ıſtorıa ok kallaz ſa meıſtarı er gıort | hefır bokına fleſt allt hafa rıtat epter fırı ſogn Sveınſ vlfſ | ſvnar af tıðendvm dana ok ſvıa

Athugasemd

Útdráttur.

Nær frá stríði Ottós keisara I. gegn Danmörku, fram til dauða Ólafs Tryggvasonar. Þar á eftir er autt rými fyrir um 8-10 línur, án þess að séð verði hvort til þess hefur verið ætlast að textinn héldi áfram.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
12 blöð (250 mm x 163 mm).
Umbrot

Sums staðar er ritað í dálka. Texti bl. 5r er að hluta skrifaður innan i hring.

Ástand

  • Flest blöðin eru vel varðveitt, en þó eru smágöt hér og þar.
  • Af bl. 1 hefur aðeins neðra hornið næst kilinum varðveist.
  • Af bl. 2 er aðeins eftir strimill næst kilinum.
  • Bl. 3 er minna en hin blöðin.
  • Bl. 5 hefur rifnað þversum.

Skrifarar og skrift

Bl. 2v er skrifað með sérstakri hendi er einnig virðist hafa skrifað spássíuviðbót á bl. 6r.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Á bl. 4r er rímfræðileg athugasemd með hendi Árna Magnússonar.
  • Spássíugrein á bl. 6r

Band

Band frá 1993. mm x mm x mm

Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr latnesku kirkjuhandriti.

Bókfellið er ríkulega skreytt.

Fylgigögn

Í umslagi með áritun Árna Magnússonar er uppskrift hans af fjarðatalinu óheila ásamt seðli. Enn fremur uppskrift hans af heilu íslensku fjarðatali með leiðréttingum hans.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til um 1310 (1r23, 1v-2r, 3r-5v, 6v-12v) (sjá  ONPRegistre , bls. 453), en til upphafs 14. aldar í  Katalog I , bls. 618.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. nóvember 1993.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 618-620 (nr. 1180). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. Haraldur Bernharðsson skráði 22. maí 2001.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið 15. október 1992 til 21. október 1993. Eldra band fylgir.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í apríl 1971.

Notaskrá

Höfundur: Bjarni Einarsson
Titill: , Litterære forudsætninger for Egils saga
Umfang: 8
Höfundur: Sävborg, Daniel
Titill: Scripta Islandica, Blot-Sven en källundersökning
Umfang: 68
Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: Nordisk kultur, Palæografi. B. Norge og Island
Umfang: 28:B
Höfundur: Storm, Gustav
Titill: Islandske annaler indtil 1578
Titill: , Veraldar saga
Ritstjóri / Útgefandi: Jakob Benediktsson
Umfang: 61
Höfundur: Oresnik, Janes
Titill: An Old Icelandic dialect feature: iæ for æ, Gripla
Umfang: 5
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Introduction, Njáls saga the Arna-Magnæan manuscript 468, 4to. (Reykjabók)
Umfang: s. V-XIX
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Alfræði íslenzk. II Rímtöl,
Ritstjóri / Útgefandi: Beckman, N., Kålund, Kr.
Umfang: 41
Titill: Alfræði íslenzk. III. Landalýsingar,
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kr.
Umfang: 45
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Titill: Færeyinga saga,
Ritstjóri / Útgefandi: Ólafur Halldórsson
Umfang: 30
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Sjötíu ritgerðir helgaðar Jakobi Benediktssyni, Ættbogi Noregskonunga
Umfang: s. 677-704
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Rímbeglusmiður,
Umfang: s. 32-49
Höfundur: Ólafur Halldórsson
Titill: Gripla, Um Danakonunga sögur
Umfang: 7
Titill: Danish kings and the Jomsvikings in the greatest saga of Óláfr Tryggvason
Ritstjóri / Útgefandi: Ólafur Halldórsson

Lýsigögn