Vantar aftan af, en einnig er eyða á eftir bl. 32. Nær yfir árin 44-1405.
Vantar aftan af hdr. en einnig er eyða á eftir bl. 32. Af hinum glötuðu örkum er ein (6 blöð, sem ná yfir árin 1185-1342) varðveitt á Háskólabókasafninu í Osló sem UB 600 4to.
Band frá júní 1968.
Í eldra bandi var handritið fest í skinnkápu, sem er tvinn úr kirkjulegu latnesku handriti (tvídálka).
Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar.
Handritið er tímasett til um 1600 í Katalog I , bls. 615.
Guðbjörg Jónsdóttir átti handritið einhvern tíma á 17. öld (sbr. innri hlið á kápu), en samkvæmt seðli Árna Magnússonar átti Oddur Sigurðsson lögmaður það í febrúar 1726.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 27. september 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júní 1968. Skinnkápa og myndir af henni fylgdu með í öskju.