Afrit af AM 162 M fol.
„…s. en sida ondr. Sigridr .h. | d. Eyolfs ...“
„... var Arnfridr .d. Þor|geirs Steins .s.“
Ættartölur biskupa á miðöldum.
Á 7r er einungis hálf lína skrifuð.
Vatnsmerki: Stórt kringlótt vatnsmerki með apa og stöng á stoð í miðjunni. Lítil kóróna ofan á (bl. 2, 7 ).
Mótmerki: Fangamark „HONIG“ (bl. 1, 3, 4, 5, 6, 8 ).
Blaðmerking 1-7 (1r-7r) með rauðu bleki, með hendi Kålunds. Upphaflega hefur Kålund merkt blað, sem nú er sér í kápu, sem blað númer 1 og þannig sett blað 1 sem blað 2 og blað 2 sem blað 3. Þegar hér var komið sögu hefur hann hætt við og leiðrétt sig og blaðmerkt handritið frá 1-7.
Eitt kver bl. 1-8 (1+8, 2+7, 3+6, 4+5), 4 tvinn.
Með hendi Árna Magnússonar, kansellískrift.
Stór bókarhnútur á bl. 7r. Nærri eins bókarhnút má finna á bl. 23v í AM 408 b 4to b.
Sennilega band frá 1880-1887 (200 mm x 158 mm x 2 mm). Þunn pappakápa og er pappír límdur innan á kápuna. Á límhlið pappírsins, sem er löggiltur skjalapappír, er ártalið 1822. Handritið getur hins vegar ekki verið bundið seinna en 1887, sbr. athugasemd Kålunds á fremra spjaldblaði. Handritið liggur í öskju með AM 408 a-i 4to.
Skrifað á Íslandi, með hendi Árna Magnússonar og tímasett til um 1700 ( Katalog (I) 1889:614).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. febrúar 1974.
Otto Ehlert batt á árunum 1880-1887.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.