Skráningarfærsla handrits

AM 408 a 4to

Biskupaannálar Jóns Egilssonar ; Ísland, 1690-1710

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-39r)
Biskupaannálar Jóns Egilssonar
Upphaf

Teitur hiet madur nockur er Skalhollt | bÿgdi fÿrst ...

Niðurlag

... þar voru | effter 14 Eckiur.

Athugasemd

Hér eru felldar út nær allar ættartölur, en einnig gerðar ýmsar breytingar og styttingar ( Jón Sigurðsson 1856:24 ).

Lýsing á handriti

Blaðefni

Pappír með vatnsmerkjum.

  • Vatnsmerki 1: Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam (bl. 1, 2, 7,8, 10, 12, 13, 15, 27, 28, 29, 30 ).

    Mótmerki: Fangamark IV (bl. 3, 4, 5, 6, 9, 11, 14, 16, 25, 26, 31, 32 ).

  • Vatnsmerki 2: Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam, með stærri kórónu (bl. 17, 20, 21, 24, 35, 36, 37, 38 )

    Mótmerki: Fangamark PD (bl. 18, 19, 22, 23, 33, 34, 39 ).

Blaðfjöldi
39 blöð (206-214 mm x 161-163 mm). Bl. 39v er autt.
Tölusetning blaða

Blaðmerking 1-39 (1r-39r). Á 27v hefur skrifara skjöplast og hann sett töluna 28 eins og hann væri að blaðsíðumerkja handritið. Til samræmis við það hefur hann sett töluna 29 á 28r, en síðan leiðrétt sig og breytt 9 í 8.

Kveraskipan

Fimm kver:

  • Kver I: bl. 1-8 (1+8, 2+7, 3+6, 4+5), 4 tvinn.
  • Kver II: bl. 9-16 (9+16, 10+15, 11+14, 12+13), 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 17-24 (17+24, 18+23, 19+22, 20+21), 4 tvinn.
  • Kver IV: bl. 25-32 (25+32, 26+31, 27+30, 28+29), 4 tvinn.
  • Kver V: bl. 33-39 (33, 34+39, 35+38, 36+37), 1 stakt blað og 3 tvinn.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er 151-160 mm x 125-130 mm.
  • Línufjöldi er 20-24.
  • Biskuparnir eru tölusettir á spássíum.
  • Griporð.

Ástand

  • Blöð eru óskorin og dekkri við jaðar.
  • Blöð eru snjáð, en skerða ekki texta.

Skrifarar og skrift

Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.

Skreytingar

Bl. 1r: Upphafsstafur dreginn ögn stærra (1-2 línur) og örlítið skreyttur.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Athugasemd við textann með hendi skrifara: 5v, 7r, 11r, 21v og 27v.
  • Tilvísanir með hendi skrifara: 2v og 5v.
  • Viðbót með annarri hendi: 10v.
  • Ártöl með annarri hendi: 11r, 17r, 23r-v, 25r-v, 26r og 33v.
  • Pennakrot með annarri hendi: 16r.
  • Áherslumerki með annarri hendi: 24r-v og 34v.
  • Strikað niður eftir leturfleti á spássíu: 34v, 35r og 36r.

Band

Band frá 1772-1780 (223 mm x 170 mm x 10 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Undir spjaldblöðum sér í blaðparta úr prentuðum ritum. Handritið liggur í öskju með AM 408 a-i 4to.

Fylgigögn

  • Fastur seðill (204 mm x 150 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar, með titli og upplýsingum um feril: Biskupa Annalar Sera Jons Eigils sonar og neðar: Var hia Orme Dadasyne og kom fra honum 1721.
  • Fastur seðill (152 mm x 98 mm) með hendi Árna Magnússonar, límdur við bl. 1r, þar sem fjallað er um ýmsa útdrætti úr riti Jóns Egilssonar: Ur Biskupa Annalum Sera Jons Eigilssonar hefi eg sied mỏrg Excerpta, sum ỏrstutt, sum uppa nockur ỏrk.

    Eru þessa Excerpta optast miskrifud hier og hvar, og ỏlldungis onyt fyrer þä er sialfann annalenn eiga.

    Nockur þvilik Excerpta hefi eg eignast, confererad þau vid opus Sera Jons, og sidan i sundur rifud.

Uppruni og ferill

Uppruni

Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur handritið til um 1700 (Katalog (I) 1889:610, sjá einnig Jón Sigurðsson, 1856:24).

Ferill

Árni Magnússon segir á seðli að handritið hafi verið hjá Ormi Daðasyni en komið þaðan 1721.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. febrúar 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • MJG uppfærði vatnsmerki með gögnum frá BS, 15. febrúar 2024.
  • GI skráði 22. nóvember 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 19. apríl 1887 ( Katalog (I) 1889:610 (nr. 1164)).

Viðgerðarsaga

Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Jørgensen, Jon Gunnar
Titill: , The lost vellum Kringla
Umfang: XLV
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Lýsigögn
×

Lýsigögn