„Teitur hiet madur nockur er Skalhollt | bÿgdi fÿrst ...“
„... þar voru | effter 14 Eckiur.“
Hér eru felldar út nær allar ættartölur, en einnig gerðar ýmsar breytingar og styttingar ( Jón Sigurðsson 1856:24 ).
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1: Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam (bl. 1, 2, 7,8, 10, 12, 13, 15, 27, 28, 29, 30 ).
Mótmerki: Fangamark „IV“ (bl. 3, 4, 5, 6, 9, 11, 14, 16, 25, 26, 31, 32 ).
Vatnsmerki 2: Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam, með stærri kórónu (bl. 17, 20, 21, 24, 35, 36, 37, 38 )
Mótmerki: Fangamark „PD“ (bl. 18, 19, 22, 23, 33, 34, 39 ).
Blaðmerking 1-39 (1r-39r). Á 27v hefur skrifara skjöplast og hann sett töluna 28 eins og hann væri að blaðsíðumerkja handritið. Til samræmis við það hefur hann sett töluna 29 á 28r, en síðan leiðrétt sig og breytt 9 í 8.
Fimm kver:
Ein hönd, óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Bl. 1r: Upphafsstafur dreginn ögn stærra (1-2 línur) og örlítið skreyttur.
Band frá 1772-1780 (223 mm x 170 mm x 10 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Undir spjaldblöðum sér í blaðparta úr prentuðum ritum. Handritið liggur í öskju með AM 408 a-i 4to.
Eru þessa Excerpta optast miskrifud hier og hvar, og ỏlldungis onyt fyrer þä er sialfann annalenn eiga.
Nockur þvilik Excerpta hefi eg eignast, confererad þau vid opus Sera Jons, og sidan i sundur rifud.“Skrifað á Íslandi. Kålund tímasetur handritið til um 1700 (Katalog (I) 1889:610, sjá einnig Jón Sigurðsson, 1856:24).
Árni Magnússon segir á seðli að handritið hafi verið hjá Ormi Daðasyni en komið þaðan 1721.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. febrúar 1974.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.