Skráningarfærsla handrits
AM 408 a 4to
Handrit hefur ekki verið myndað stafrænt
Biskupaannálar Jóns Egilssonar; Ísland, 1690-1710
Innihald
Biskupaannálar Jóns Egilssonar
„Teitur hiet madur nockur er Skalhollt | bÿgdi fÿrst“
„þar voru | effter 14 Eckiur.“
Hér eru felldar út nær allar ættartölur, en einnig gerðar ýmsar breytingar og styttingar (Jón Sigurðsson 1856:24).
Bl. 39v autt.
Lýsing á handriti
Blaðmerking 1-39 (1r-39r). Á 27v hefur skrifara skjöplast og hann sett töluna 28 eins og hann væri að blaðsíðumerkja handritið. Til samræmis við það hefur hann sett töluna 29 á 28r, en síðan leiðrétt sig og breytt 9 í 8.
Fimm kver:
- Kver I: 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver II: 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver III: 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver IV: 8 blöð, 4 tvinn.
- Kver V: 7 blöð, 3 tvinn og 1 stakt blað.
- Leturflötur er 151-160 mm x 125-130 mm.
- Línufjöldi er 20-24.
- Biskuparnir eru tölusettir á spássíum.
- Griporð.
Bl. 1r: Upphafsstafur dreginn ögn stærra og örlítið skreyttur.
- Athugasemd við textann með hendi skrifara: 5v, 7r, 11r, 21v og 27v.
- Tilvísanir með hendi skrifara: 2v og 5v.
- Viðbót með annarri hendi: 10v.
- Ártöl með annarri hendi: 11r, 17r, 23r-v, 25r-v, 26r og 33v.
- Pennakrot með annarri hendi: 16r.
- Áherslumerki með annarri hendi: 24r-v og 34v.
- Strikað niður eftir leturfleti á spássíu: 34v, 35r og 36r.
Band frá 1772-1780 (223 mm x 170 mm x 10 mm). Pappaspjöld og kjölur klædd handunnum pappír. Undir spjaldblöðum sér í blaðparta úr prentuðum ritum. Handritið liggur í öskju með AM 408 a-i 4to.
- Fastur seðill fremst með hendi Árna Magnússonar, með titli og upplýsingum um feril.
- Fastur seðill með hendi Árna Magnússonar, límdur við bl. 1r, þar sem fjallað er um ýmsa útdrætti úr riti Jóns Egilssonar.
Uppruni og ferill
Kålund tímasetur handritið til um 1700 (Katalog (I) 1889:610, sjá einnig Jón Sigurðsson 1856:24).
Árni Magnússon segir á seðli að handritið hafi verið hjá Ormi Daðasyni en komið þaðan 1721.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 9. febrúar 1974.
Aðrar upplýsingar
- GI skráði 22. nóvember 2002.
- Kålund gekk frá handritinu til skráningar 19. apríl 1887 (Katalog (I) 1889:610 (nr. 1164)).
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Notaskrá
Höfundur | Titill | Ritstjóri / Útgefandi | Umfang |
---|---|---|---|
Jón Sigurðsson 1856:24 | |||
Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling | ed. Kristian Kålund | ||
Jón Sigurðsson 1856:24 | |||
Jón Egilsson, Jón Sigurðsson | Biskupa-annálar Jóns Egilssonar, með formála, athugasemdum og fylgiskjölum eptir Jón Sigurðsson, Safn til sögu Íslands og íslenzkra bókmenta að fornu og nýju | 1856; I: s. 15-136 | |
Jon Gunnar Jørgensen | The lost vellum Kringla, | 2007; XLV |