„Þa er almennilegre kristne guds“
„... hans kærer viner sira Haflide“
„... sẏngiande ok halldande veislu“
„... af þeim kors brædrum ok þeira fylgiorum “
Bl. 2v og 8v autt.
Eitt tvinn, eitt kver (4 blöð, 2 tvinn) og tvö stök blöð.
Ein hönd.
Óþekktur skrifari.
Band frá mars 1966 (218 mm x 187 mm x 3 mm). Pappakápa. Saumað á móttök. Handritið liggur í öskju með AM 406 a II 1 4to - AM 406 a II 5 4to.
Kålund tímasetur handritið til um 1700 ( Katalog (I) 1889:608 ). Áður, sennilega árið 1697, höfðu Árni Magnússon og séra Þórður Jónsson á Staðarstað gert atlögu að því í Kaupmannahöfn að skrifa upp það sem torlæsilegt er í AM 406 a I 4to. Þessi uppskrift er ögn yngri og nákvæmari ( Árni Björnsson 1969:xliv og AM 406 a II 4 4to).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 25. júlí 1973.
Viðgert og bundið í Kaupmannahöfn í mars 1966. Eldra band fylgdi ekki með, enda óvíst að þau handrit sem nú liggja saman í öskju merktri AM 406 a II 4to hafi áður verið saman í bandi.