„Her byriar Søgu af Laurentio Hola Biskupe“
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1: Aðalmerki: Stórt ljón sem stendur í tvöföldum hring með kórónu. Á milli línanna á hringnum eru blóm (bl. 1, 2, 7, 8, 9, 10, 15, 16, 18, 20, 21, 23, 25, 27, 30, 32, 35, 36, 37, 38 ).
Mótmerki: Fangamark „HH“ (bl. 3, 4, 5, 6, 11,12, 13, 14, 17, 19, 22, 24, 26, 28, 29, 31, 33, 34, 39, 40 ).
Seðillinn hefur einnig sama vatnsmerki, en pappírinn er aðeins þynnri.
Blaðmerkt með blýanti 1-40, síðari tíma viðbót.
Leifar af eldri blaðmerkingu með rauðu bleki 1-40.
Fimm kver:
Með hendi Jóns Gíslasonar, fljótaskrift.
Fyrirsagnir stærri en texti meginmáls og skrifaðar með kansellískrift.
Nótur á bókfelli í eldra bandi.
Band í nóvember 1973. Strigi á kili og hornum, strigaklæðning. Saumað á móttök.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti með nótum, blöð úr Access. 7. (Hs 61).
Handritið er skrifað annað hvort á Íslandi eða í Danmörku. Með hendi Jóns Gíslasonar og tímasett til loka 17. aldar í Katalog I, bls. 606.
Árni Magnússon fékk handritið úr búi Þormóðs Torfasonar árið 1720. Var nr. 10 í safni Þormóðs (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 13. febrúar 1974.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1973. Eldra band fylgir.