Ein hönd.
Band frá 1880-1920. Strigi á kili og hornum, pappírsklæðning.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr kirkjulegu latnesku handriti.
Einn seðill (203 mm x 74 mm) með hendi Árna Magnússonar límdur á fremra saurblaði: „Þessa Hungurvöku með hendi síra Ketils Jörundssonar, hefi ég fengið af móðursystur minni Halldóru Ketilsdóttur. Ég léði hana nokkra stund Vigfúsi Jónssyni á Leirá, og trúi ég hann léti hana uppskrifa. Er þar svo hjá honum ein progenies þessarar bókar.“
Með hendi séra Ketils Jörundssonar og tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 593, en virkt skriftartímabil Ketils var c1620-1670.
Árni Magnússon fékk þessa Hungurvöku hjá móðursystur sinni Halldóru Ketilsdóttur. Hann léði hana um tíma Vigfúsi Jónssyni á Leirá (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 11. október 1973.
Bundið af Otto Ehlert á árunum 1880-1920.