„Hungur Vaka“
Pappaband með pappírsklæðningu.
Á rectosíðu 1. blaðs stendur með hendi Árna Magnússonar: „Þessi Hungurvaka er í fyrstu skrifuð eftir exemplar sem ég hefi α, og síðan confereruð við exemplar með hendi Þorsteins Eyjólfssonar, frá Magnúsi Sigurðssyni í Bræðratungu β. Er það sama exemplar úr æði rangt. Þar er aftan við continuatio síra Jóns Egilssonar, og er hún eins röng sem Hungurvakann sjálf γ. α] rituðu 1654 sem verið hefur herra Þorláks Skúlasonar. β] Var í folio og hafði ég það til láns af Magnúsi 1703 γ] þessa continuationem trúi ég ekki að ég confereraði við eitt af mínum exemplarum, og gildi það eins, því hún var gauðröng, og að öðru lík þeim almennilegu. “
Handritið er tímasett til um 1700 í Katalog I , bls. 593.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. nóvember 1974.