„ARÆ MULTISCII Liber Islandorum“
Runnið frá AM 113 a fol.
„Íslendingabók gjörða ég fyrst biskupum …“
„… föður Ketils er nú er biskup að Hólum næstur Joanni.“
Íslenskur texti ásamt þýðingu á latínu. Latneska þýðingin er á gagnstæðum síðum við íslenska textann. Nafnaskrá á bl. 44v-47r.
Á bl. 1r hefur verið krassað yfir texta (8 línur).
Árni Magnússon skrifaði íslenska textann og leiðréttingar við latnesku þýðinguna, árfljótaskrift.
Hjalti Þorsteinsson hreinritaði þýðinguna eftir blöðum Árna, kansellíbrotaskrift.
Víða spássíugreinar.
Band frá 1772-1780 (204 mm x 171 mm x 12 mm). Pappaspjöld klædd handunnum pappír, Saumað með hamptaumum. Blár safnmarksmiði á kili. Spjaldblöð úr handunnum pappír.
Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar (mili bl. 1v og 2r)
Handritið var skrifað í Kaupmannahöfn á árunum 1686-1689. Í Katalog I , bls. 588, er handritið tímasett til um 1700.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. maí 1980.
Matthias Larsen Bloch batt á árunum 1772-1780.