Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 344 a 4to

Örvar-Odds saga ; Ísland, 1350-1400

Tungumál textans
íslenska

Innihald

(1r-24v)
Örvar-Odds saga
Titill í handriti

Örvar-Odds saga

Vensl

Áður ranglega skráð sem KBAdd. 76 b 4to.

Upphaf

Grímur hét maður og kallaður loðinkinni …

Niðurlag

… og þar vaxið upp sá ættbogi sem frá henni hefir komið.

Baktitill

Og lýkur hér nú sögu Örvar-Odds eftir því sem [eg] hefi hana á bókum heyrt. En þó að eg hafi mörg orð þau mælt eða framsagt í þessi sögu er ónytsamleg eru, því að eg veit eigi hvort nokkurt orð er satt eða ekki, þá bið eg þess að Guð almáttugur láti engan gjalda, þann er les eða hlýðir eða ritar. Nú sé Guð varðveitandi oss frá öllum illum hlutum meðan vér lifum hér í heimi en styrki oss til allra góðra hluta, en eftir þessa heims líf förum vér með honum sjálfum til eilífrar dýrðar þeirrar er hann hefir fyrir búið öllum sínum vinum um óendilegar aldir alda. Amen.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn.
Blaðfjöldi
i + 24 + i blöð (214-216 mm x 152-155 mm). Tvö öftustu blöðin eru örlítið minni.
Tölusetning blaða

Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með rauðu bleki, 1-24.

Kveraskipan

Þrjú kver.

  • Kver I: bl. 1-7, 3 tvinn og stakt blað.
  • Kver II: bl. 8-15, 4 tvinn.
  • Kver III: bl. 16-24, 4 tvinn og stakt blað.

Umbrot

  • Eindálka.
  • Leturflötur er ca 170-178 mm x 117-135 mm.
  • Línufjöldi er ca 31-36.
  • Víða gatað fyrir línum.

Ástand

  • Handritið er nokkuð skítugt og blettótt. Texti er örlítið skertur vegna þessa á bl. 16r. Á bl. 19v hefur blek runnið til í nokkrum orðum, líklega vegna vatnsskemmda. Á bl. 24v eru nokkur orð afmáð vegna slits.
  • Nokkur orð hafa verið skafin burt á bl. 1r.
  • Gat sem hefur orðið til við verkun á bl. 13, dálítill hárbrúskur hefur orðið eftir þar.

Skrifarar og skrift
Að minnsta kosti tvær hendur og lesbrigðum bætt við með seinni hendi (Boer 1888, II-V).

Óþekktur skrifari, textaskrift (fremst) og árléttiskrift (bl. 1r-21r:3).

Óþekktur skrifari, textaskrift (bl. 21r:3-24v).

Lesbrigðum bætt við með hendi frá 17. öld.

Skreytingar

Upphafsstafir í ýmsum litum, rauðum, bláum og grænum.

Rauður titill og kaflafyrirsagnir, en víðast máð.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

  • Titill er með rauðu bleki lengst til hægri í fyrstu línu, en Árni Magnússon afritar hann efst fyrir miðju með svörtu bleki.
  • Mjög víða eru leiðréttingar með yngri hendi á spássíum og er stundum strikað yfir orð í texta, sumt kann að vera lesbrigði.
  • Á neðri spássíu á bl. 10r stendur: eg Ívissi Ívarsson og Ingibjörg. Einnig er spássíugrein á neðri spássíu bl. 23v og texti á neðri hluta bl. 24v sem reyndar er nokkurn veginn ólæsilegur.

Band

Band frá 19. öld (228 mm x 168 mm x 14 mm). Pappaspjöld klædd pappír með ljósu marmaramynstri. Grátt skinn á kili og hornum. Saurblöð tilheyra bandi. Upprunaleg saumgöt eru við kjöl en hafa ekki öll verið notuð þegar handritið var bundið aftur.

Fylgigögn

Fastur seðill (164 mm x 104 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar með upplýsingum um feril: Þessi Örvar-Odds saga var aftan við Alexandri Magni [Alexanders] sögu, með ágætri gamalli hendi ritara. Ég separeraði þetta. Bókina hefi ég fengið í Noregi.

Uppruni og ferill

Uppruni

  • Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til ca 1350-1400 (sjá  ONPRegistre , bls. 452), en til um 1400 í  Katalog I , bls. 579.
  • Handritið var áður hluti af stærri bók með Alexanders sögu sem Árni Magnússon hlutaði sundur (sjá seðil). Um feril þessarar bókar sjá AM 519 a 4to.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið í Noregi (sjá seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 8. nóvember 1982.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

  • BS satt inn upplýsingar um skrifara 14. september 2022.
  • ÞS skráði samkvæmt reglum TEIP5 9. desember 2009.
  • GI færði inn grunnupplýsingar 8. ágúst 2001.
  • Kålund gekk frá handritinu til skráningar 18. mars 1887 ( Katalog I 1889:579-580 (nr. 1094). ).

Viðgerðarsaga

Viðgert (minni háttar) af Birgitte Dall 1981. Teikning af heftingu liggur með handritinu.

Myndir af handritinu

  • Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
  • Svart-hvítar ljósmyndir á Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi, sem keypti þær af Arne Mann Nielsen í febrúar 1981.

Notaskrá

Höfundur: Aðalheiður Guðmundsdóttir
Titill: Hallamál : rétt Haraldi Bernharðssyni fimmtugum 12. apríl 2018, Stóð og stjörnur
Umfang: s. 7-10
Höfundur: Seip, Didrik Arup
Titill: Nordisk kultur, Palæografi. B. Norge og Island
Umfang: 28:B
Höfundur: Hreinn Benediktsson
Titill: Linguistic studies, historical and comparative
Höfundur: Jón Helgason
Titill: Småstykker 1,2 og 8,
Umfang: s. 278-283, 289-291
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Titill: Örvar-Odds saga
Ritstjóri / Útgefandi: Boer, R. C.
Höfundur: Stefán Karlsson
Titill: Islandsk bogeksport til Norge i middelalderen,
Umfang: s. 1-17
Lýsigögn
×

Lýsigögn