„Sagan af Häldäne Brønu|föſtra“
„Hryngur er kongur nefndur. Hann ried firir Danmörk ...“
„... og endar hier sogu af Haldane Bronu fostra.“
Pappír með vatnsmerkjum.
Vatnsmerki 1: Aðalmerki: Stórt skjaldarmerki Amsterdam, ekkert fangamark fyrir neðan. Lítil kóróna innan í stærri kórónu (bl. 2, 4, 5, 7, 10, 11, 14, 15, 17, 19, 22, 24, 26, 27, 30, 31, 34, 36, 37, 39, 57, 59, 62, 64, 66, 67, 70, 71, 74, 76, 77, 79, 81, 84, 85, 88, 90, 91 ).
Mótmerki, fangamark „ET“ (bl. 1, 3, 6, 8, 9, 12, 13, 16, 18, 20, 21, 23, 25, 28, 29, 32, 33, 35, 38, 40, 58, 60, 61, 63, 65, 68, 69, 72, 73, 75, 78, 80, 82, 83, 86, 87, 89, 92 ).
Vatnsmerki 2: Aðalmerki: Skjaldarmerki Amsterdam, fangamark „PL“? og kórónan er breiðari (bl. 41, 44, 45, 48, 49, 51, 54, 56 ).
Mótmerki 1: Fangamark með tveimur eða þremur stöfum (bl. 42, 43, 46, 47, 50, 52, 53, 55 ).
Blaðsíðumerking 361-542.
Yngri blaðmerking á miðri efri spássíu rektósíðna.
Tólf kver:
Óþekktur skrifari, fljótaskrift.
Í fyrri hluta handritsins eru pennaflúr á efri hluta versósíðna og neðri hluta rektósíðna
Höfuðstafir skrifaðir aðeins stærri, allt að tveimur línum.
Fyrirsagnir eru skrifaðar í skrautlegri kansellískrift.
Band frá 1982.
Pappaspjöld klædd fínofnum líndúk.
Í eldra bandi voru spjöld og kjölur klædd bókfelli úr Jónsbókarhandriti frá 16. öld (því sama og notað er í band AM 286 4to, AM 288 4to, AM 289 4to og AM 290 4to). Hér er varðveitt brot úr Rekabálki.
Áður en Árni Magnússon átti stærra handritið sem þessi eining er hluti af var það sennilega í vörslu Thomasar Bartholin.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. október 1983.
Viðgert og bundið 1982. Eldra band fylgir, þó ekki það band sem um getur í skrá Kålunds og nú er trúlega hluti af blöðum AM 173 4to.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.