Skráningarfærsla handrits

AM 280 4to

Bessastaða kópíubók ; Ísland, 1600-1700

Tungumál textans
danska (aðal); íslenska

Innihald

1 (1r-137v)
Bessastaða kópíubók
Athugasemd

Strikað er yfir hluta af efni handritsins til marks um að það hafi verið afritað.

1.1 (1r-31v)
Reynistaðarklaustursbréf
1.2 (32r-64v)
Munkaþverárklaustursbréf
1.3 (65r-70v)
Möðruvallaklaustursbréf
Athugasemd

Bl. 71-72 auð.

1.4 (73r-103v)
Þingeyraklaustursbréf
1.5 (104r-112r)
Skriðuklaustursbréf
1.6 (113r-137v)
Skrá yfir eignir Reynistaðar, Arnarstapa, Bessastaða, Viðeyjar, Munkaþverár, Þingeyra, Möðruvalla, Kirkjubæjar og Þykkvabæjar
Athugasemd

Upplýsingar um húseignir, laust og gangandi fé á íslenskum konungsjörðum og klaustrum frá því fyrir og eftir 1600.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Pappír
Blaðfjöldi
137 blöð ().
Tölusetning blaða

Blaðmerkt frá 1-273 af Jóni Sigurðssyni.

Umbrot

Skrifarar og skrift

Ein hönd (bl. 113 o.áfr. sennilega með eldri höndum).

Band

 

Fylgigögn

Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar.

  • Seðill 1 (framan við Þingeyraklaustursbréf) (133 mm x 106 mm): In margine, merkir að þau bréf þarf ég ekki oftar að skoða, heldur eru þau confereruð við originalana. Sums staðar hefur Hákoni misskrifast og er það eins í Bessastaða bókinni, þar hún með þessari convenrat.
  • Seðill 2 (að bls. 223) (163 mm x 104 mm): Aftan við Skriðuklaustursbréf í Bessastaðakópíubók með hendi Hákonar Ormssonar, lét ég 1710 skrifa eignarbréf Skriðuklausturs fyrir Lækjardal í Öxarfirði (skemmsta kirkjusókn) Dat: Grenjaðarstöðum mánudaginn næsta fyrir Mikjálsmessu 1496 og setti þar in margine n. 18. Hvert bréf annars finnst fyrir í kópíubókinni á meðal Munkaþverárklaustursbréfa n. 37. Síðan sá ég að þetta var þarflaust, því að þennan sama Lækjardal seldi prior Narfi á Skriðu Munkaþverárklaustri 1498. Og hefur svo með það sama extraderað þetta Skriðuklausturs eignarbréf, og heyrir það því með réttu til Munkaþverár enn ei til Skriðu.

Uppruni og ferill

Uppruni

Að mestu með hendi Hákonar Ormssonar landskrifara (sbr. seðla og AM 477 fol.) og tímasett til 17. aldar í  Katalog I , bls. 532.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 5. október 1973.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 532-533 (nr. 1013). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. GI skráði 24. október 2001.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Guðrún Ása Grímsdóttir
Titill: Dynskógar, Heimildir í handritum um klaustrin í Skaftafellsþingi
Umfang: 7
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian

Lýsigögn