Band, kápa um hvern hluta, frá 1959.
Átta seðlar með hendi Árna Magnússonar
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. september 1973.
Tekið eftir Katalog I , bls. 526-527 (nr. 1004). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886 DKÞ skráði 11. ágúst 2003. Már Jónsson skráði seðla Árna Magnússonar í febrúar 2000.
Viðgert og bundið í kápur (sem liggja saman í öskju) í Kaupmannahöfn 1959. Eldra band fylgdi ekki (óvíst hvort bundið áður).
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.
Brot, einungis upphafið, þ.e. skrá yfir eignir Sauðaneskirkju, tekin saman 1344.
Titill með síðari tíma hendi á bl. 1r, sem annars er autt að mestu: Registrum eigils biskups | Anno MCCCXXXIX | MCCCXLIIIJ .
Titill með síðari tíma hendi á bl. 1r.
Þrír seðlar með hendi Þórðar Þórðarsonar, með athugagreinum og viðbótum Árna Magnússonar.
Skrifað c1339-1344 (sbr. bl. 1r). Tímasett til 14. aldar í Katalog I , bls. 526. Brot úr stærra handriti.
Árni Magnússon virðist hafa tekið þetta blað úr handriti af rekaskrá, sem tilheyrði Hóladómkirkju (sbr. seðla).
Brot, varðar Þingeyjarsýslu.
Titill Árna Magnússonar á seðli: Máldagar Pétrs biskups, interpoleraðir hér og hvar .
Blöðin eru dökk og illa farin og skriftin ógreinileg.
Skrifað c1426-1483. Tímasett til c1500 í Katalog I , bls. 526.
Skrá frá árinu 1535 yfir muni og jarðeignir kirkjunnar á Grenjaðarstöðum í Þingeyjarsýslu.
Bl. 2v autt að mestu.
Þrír seðlar með hendi Árna Magnússonar, um skriftina á blöðunum.
Skrifað c1535-1600. Tímasett til 16. aldar í Katalog I , bls. 526. Var áður hluti af stærri máldagabók (sbr. seðil).
Tvö brot af skrá yfir eignir Hóladómkirkju og -biskupsstóls sem tekin var saman eftir dauða Guðbrands biskups.
Bl. 1r og 2v auð, þar sem skriftin virðist hafa verið skafin burt.
Skriftin skafin burt á bl. 1r og 2v.
Einn seðill með hendi Árna Magnússonar, um aðföng.
Skrifað c1627-1700. Tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 527.
Árni Magnússon hefur fengið þessi blöð frá Sigurði Vigfússyni árið 1725 (sbr. seðil).