Brot af ýmsum uppskriftum yfir kirkjueignir Skálholtsstiftis, þ.e. kirkna í syðri hluta landsins (Árnessýslu), hluta af Vesturlandi (einkum Dalasýslu) og Vestfjörðum. Bl. 26 autt.
Fyrstu blöð hdr. blaðmerkt á neðri spássíu: 122-127 og 138-142.
Brot af mörgum handritum.
Á fremra saurbl. 2r er athugasemd frá Árna Magnússyni um feril hdr.
Band frá því í apríl 1970.
á saurblaði stendur með hendi Árna Magnússonar: „Máldagarusl í tíð herra Odds og sumt miklu eldra. Komið til mín frá monsieur Oddi Sigurðssyni.“
Handritið er tímasett til um 1600 í Katalog I , bls. 521.
Árni Magnússon fékk handritið frá Oddi Sigurðssyni lögmanni (sjá saurbl.).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 5. október 1973.
Viðgert og bundið í apríl 1970. Eldra band fylgdi ekki með.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.