„Inntak úr sendibréfum ýmsra vitra manna um lagaskilning, Guðmundi S. Hákonarsyni til skrifuðum“
Band frá því í nóvember 1973.
Saurblað aftast er fólíóblað með afriti af gömlum athugasemdum um greifastríðið.
Fastur seðill (201 mm x 158 mm) með hendi Árna Magnússonar, en upplýsingarnar á honum eiga við um AM 250 a 4to: „Þessar Björns á Skarðsá Epistolas léði mér anno 1708 monsieur Þorleifur Arason frá Haga en gaf mér þær 1711. Þær eru ritaðar með hendi Þorkels Guðmundssonar.“
Handritið er tímasett til c1650-1700, en til 17. aldar í Katalog I , bls. 515.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. janúar 1975.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1973. Eldra band fylgdi og gamalt saurblað fest í kápu, allt í einni öskju.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.