Óheilt.
Hér eru varðveitt frumskjöl og skjöl í afriti viðvíkjandi Skálholtsbiskupsdæmi í tíð Gísla Oddssonar biskups, en einnig sambærileg skjöl í afriti frá fyrri tíð. Á bl. 276-282 er efnisyfirlit, en þar á eftir koma nokkur sendibréf og skjöl varðandi biskupsstólinn. Af efnisyfirliti má sjá að á blöðunum sem nú eru glötuð hefur þetta efni verið: Herradagur til Augsburg Anno 1582 og Lytel vnderuijſun vmm margtt huad þad ſem rijme viduijkur . Vert er og að nefna að meðal efnis í hdr. er ættrakning norrænna sagnakonunga frá Trójumönnum og ásum: Nockrar greiner ur gỏmlum Annälumm .
Blaðmerking á neðri spássíu er 1-287, en óvart hlaupið yfir tölurnar 229 og 232.
Bl. 102-117 vantar í hdr.
Ýmsar hendur.
Band frá því í nóvember 1974.
Tveir seðlar með hendi Árna Magnússonar.
Að hluta til eiginhandarrit Gísla Oddssonar biskups og tímasett til fyrri helmings 17. aldar í Katalog I , bls. 510. Aðra hönd í þessu handriti má einnig finna í efni frá föður Gísla, Oddi Einarssyni biskupi.
Handritið tilheyrði áður Oddi Sigurðssyni lögmanni (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 10. júlí 1975.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1974. Eldra band er í öskju með hdr.