Upplýsingar og fróðleikur frá biskupnum og fyrir hann, fyrst og fremst frá síðustu árum hans, einkum árinu 1630. Meðal efnis: afrit af bréfum, útdráttur úr bréfabók Gísla Jónssonar biskups, fróðleikur um prestaköll biskupsdæmisins, minnisgreinar um alþingi (1620 og 1622), frásögn af óhöppum í Skálholti við jarðskjálfta og eldgos árið 1630 og þar með upplýsingar um bækur og handrit sem biskupinn missti í eldi, afgjöld til biskupsstólsins o.fl.
Handritið hefur verið blaðmerkt síðar með bláu bleki á neðri spássíu 1-45.
Með ýmsum höndum, fljótaskrift.
Band frá því í mars 1963 (213 mm x 170 mm x 10 mm). Pappaspjöld klædd brúnum mynstruðum pappír, safnmarksmiði á kili. Saurblöð tilheyra bandi. Handritið liggur í öskju.
Fastur seðill (197 mm x 160 mm) fremst með hendi Árna Magnússonar: „Memoralia H. Odds biskups frá monsieur Oddi Sigurðssyni“.
Handritið er skrifað á Íslandi. Það er tímasett til fyrri helmings 17. aldar í Katalog I , bls. 510.
Árni Magnússon fékk handritið frá Oddi Sigurðssyni lögmanni (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 12. september 1973.
Viðgert og bundið í mars 1963. Eldra band fylgdi ekki með.