Óheilt. Meðal efnis eru gömul skjöl og samtímaskjöl, t.d. dómar, afsöl og vitnisburðir. Aukinheldur eru hér varðveittar upplýsingar er snerta biskupinn sjálfan, t.d. um fjárreiður hans og kirkjunnar, prestana og prestaköll biskupsdæmisins. Á bl. 67v eru athugasemdir á dönsku um ákvæði Stettinarsamkomulagsins, en á bl. 70v-71 frásagnir af vígslu biskupsins í Kaupmannahöfn 1571 og reisu hans til Íslands. Síðasta blaðið í örkum oktavóblaðanna er oft autt.
Ýmsar hendur.
Hluti af handritinu (blöð í oktavó) er afrit af ýmsum skjölum bréfabókarinnar. Afrit þessi eru skrifuð í upphafi 18. aldar af skrifara Árna Magnússonar á bl. 3-10, 19-24, 26-31, 39-44, 91-94, 97-98, 116-121, 123-130, 136-145, 150-157, 164-167, 171-174, 176-183, 185-194, 199-200, 206-211, 213-216, 218-221, 223-225, 227-230, 241-244 eru.
Band frá því í febrúar 1961.
Seðill með hendi Árna Magnússonar við bl. 11.
Handritið er tímasett til síðari helmings 16. aldar í Katalog I , bls. 509.
Árni Magnússon fékk handritið frá Magnúsi Arasyni (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 28. september 1973.
Viðgert og bundið í febrúar 1961. Eldri og yngri hluti aðskildir og bundnir sér. Hvorttveggja í einni öskju ásamt eldra bandi.
Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.