Afrit, fyrir Árna Magnússon, af tíu íslenskum fornbréfum frá 16. öld.
Fastur seðill (205 mm x 156 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Originalana af þessum bréfum á nú 1710 Vigfús Jónsson á Leirá, ég gaf honum þau. Þau hafa fyrrum verið eign Björns Magnússonar á Munkaþverá, öll eða flestöll.“leiðrétt er ártalið í 1711.
Handritið er tímasett til upphafs 18. aldar í Katalog I , bls. 506.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 19. september 1973.