Sumt í frumriti og annað í afriti. Meðal efnis: Tvö skjöl varðandi söluna á bænum Fossi á Skagaströnd, útnefning varalögréttumanns árið 1672 (frumrit), vitnisburður um skoðunargerð á Stapa árið 1644 (frumrit), útdráttur úr bréfi Eggerts Björnssonar í Bæ á Rauðasandi varðandi gjaftoll o.fl., reikningsskil Guðmundar Jónssonar árið 1662 á Bessastöðum (frumrit), latneskt meðmælabréf skrifað af Brynjólfi Sveinssyni biskupi árið 1667 fyrir Gísla Vigfússon stúdent.
Sjá fyrsta efnisþátt.
Ýmsar hendur.
Band frá nóvember 1974.
Tímasett til 17. aldar í Katalog I , bls. 490.
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 2. júlí 1975.
Viðgert og bundið af Birgitte Dall í nóvember 1974. Eldra band fylgir í öskju með hdr.