Skráningarfærsla handrits

PDF
PDF

AM 186 4to

Kirkjuskipanir og skriftamál ; Ísland, 1480

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-4v)
Um skritamál og iðrun
2 (4v-33v)
Kristinréttur Árna biskpus
Athugasemd

Um helgidaga og kirknaeignir, frá 17. ágúst 1247.

3 (33v-64v)
Kirkjuskipanir
Athugasemd

Frá 12.-14. öld.

Bl. 65 upprunalega autt, en nú eru á því nöfn og ártal.

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
65 blöð ().
Umbrot

  

Ástand

Skinnið er stökkt og nokkuð skaddað fremst og aftast í hdr.

Skreytingar

Upphafsstafir í ýmsum litum.

Rauðritaðar fyrirsagnir.

Spássíugreinar og aðrar viðbætur

Bl. 65 (upprunalega autt): á því eru nú nöfn og ártalið 1688.

Band

Band frá júlí 1978.  

Fylgigögn

Fjórir seðlar með hendi Árna Magnússonar.

  • Seðill 1 (143 mm x 98 mm): Mitt. Fengið af lögmanninum Páli Vídalín, hann fékk af Vermundi Ketilssyni. Þetta er registrerað.
  • Seðill 2(155 mm x 109 mm): Í vetur 1707 léði Björn Halldórsson í Ey Jóni Þórðarsyni á Bakka í Melasveit Kristinrétt á Kálfskinn, mutilum í stóru 16 blaða formi, eða litlu 4to. Þar stóð í, að leita heilla hjá Fossbyggjum eða Fossbúum. Fragment þetta sagði hann eiga Vermund Ketilsson, þar nærri sér. Jón meinar þetta hafa verið heldur collection úr ýmsu en réttara Kristinrétt. Habeo libellum.
  • seðill 3 (155 mm x 109 mm): Kom frá Ísland[i] með Admiral Raben, 1720.
  • Seðill 4 (92 mm x 127 mm): De confessione et poenitentia, non nulla (?) islandice. Kristinréttur (Árna biskups) Biskupa statutum margar. Eiríks erkibiskups bréf mörg til Íslands. NB. 4to minori vel octavo. Kverið fékk ég 1707 úr Borgarfirði frá Vermundi Ketilssyni.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til c1480 (sjá  ONPRegistre , bls. 449), en til 1450-1500 í  Katalog I , bls. 461.

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 20. september 1979.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 461 (nr. 862). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í október 1886. GI skráði 14. ágúst 2002.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í júlí 1978. Eldra band er í öskju með hdr. Gömul askja (utan af filmum) sem hdr. var eitt sinn í fylgdi því og ásamt miða með hendi Agnete Loth.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Höfundur: Walgenbach, Elizabeth
Titill: Gripla, The canon Si quis suadente and excommunication in medieval Iceland
Umfang: 30
Titill: Katalog over Den Arnamagnæanske Håndskriftsamling
Ritstjóri / Útgefandi: Kålund, Kristian
Titill: Ordbog over det norrøne prosasprog: Registre
Ritstjóri / Útgefandi: Den arnamagnæanske kommision
Höfundur: Bekker-Nielsen, Hans, Widding, Ole
Titill: , Fra ordbogens værksted
Umfang: s. 341-349
Lýsigögn
×

Lýsigögn