Skráningarfærsla handrits

AM 155 a 4to

Jónsbók ; Ísland, 1480-1500

Tungumál textans
íslenska

Innihald

1 (1r-95v)
Jónsbók
Upphaf

lutter. gd ſett.

Athugasemd

Vantar framan af, hefst í formála. Einnig vantar innan úr Landsleigubálki (eftir bl. 46), frá lokum 4. kafla til loka 13. kafla.

Á eftir Kristindómsbálki fylgja hinar venjubundnu viðbætur við yngri kristinrétt.

Efnisorð
2 (96r-100v)
Réttarbætur
Athugasemd

Vantar á eftir bl. 96.

 

Lagaákvæði og formálar frá 13.-14. öld.

Efnisorð

Lýsing á handriti

Blaðefni
Skinn
Blaðfjöldi
100 blöð, þar með talið blað 46 bis ().
Umbrot

  

Ástand

  • Skinnið hér og þar fúið.
  • Vantar framan af handriti og á eftir bl. 96. Einnig vantar á eftir bl. 46, en af því sem þar vantar stendur einungis þríhyrndur skinnbútur eftir næst kili (46 bis).

Skreytingar

Upphafsstafir í ýmsum litum.

Rauðritaðar fyrirsagnir.

Band

Band frá maí 1973.  

Fylgigögn

  • Einn seðill (sem er tvinn) () með hendi Árna Magnússonar: Jónsbók. Vantar í nokkuð. Réttarbætur nokkrar. Kristinréttur Árna biskups vantar við endann. Bókina eignaðist ég 1707 í Saurbæ á Kjalarnesi hjá lögmanninum Sigurði Björnssyni. Er eigi rétt gamall codex.
  • Lýsing Jóns Sigurðssonar og eldra band liggur hjá í öskju.

Uppruni og ferill

Uppruni

Tímasett til c1480-1500 (sjá  ONPRegistre , bls. 446), en til síðari helmings 15. aldar í  Katalog I , bls. 436.

Ferill

Árni Magnússon fékk handritið árið 1707 hjá Sigurði Björnssyni lögmanni í Saurbæ á Kjalarnesi (sbr. seðil).

Aðföng

Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 21. nóvember 1974.

Aðrar upplýsingar

Skráningarferill

Tekið eftir Katalog I , bls. 436-437 (nr. 820). Kålund gekk frá handritinu til skráningar í nóvember 1886. GI skráði 18. júní 2002.

Viðgerðarsaga

Viðgert og bundið af Birgitte Dall í maí 1973.

Myndir af handritinu

Svart-hvítar ljósmyndir á Det Arnamagnæanske Institut í Kaupmannahöfn.

Notaskrá

Lýsigögn
×

Lýsigögn