„audrum vid toku ad hann hae“
Vantar aftan af, endar í Þjófabálki (8. kap.).
Vantar blað á eftir bl. 24, en einnig vantar aftan af handriti.
Upphafsstafir bálka mjög skreyttir með gyllingu, blómamynstri og þess háttar, sennilega gert erlendis.
Upphafsstafir kafla eru settir í stað annarra sem þurrkaðir hafa verið út.
Upphafsstafir í ýmsum litum.
Rauðritaðar fyrirsagnir.
Bl. 89r: Á neðri spássíu er skjaldarmerki, en innan í því er fangamark.
Einn seðill (106 mm x 132 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Kristinréttur (Árna biskups). Jónsbók. 4to non admodum vetustus codex. Bókina fékk ég af Justits Raad Rostgaard, en hann keypti hana 1696 í Leyden í Hollandi, in auctione Jacobi Golii, í hverri Catalogo hún ranglega kallast: Leges Norvegicæ et Islandicæ, tum politicæ tum ecclesiasticæ, charactere islandico contracto descriptæ.“
Á fremra spjaldblaði stendur: „Fridericus Rostgaard* enit Viginti florensis Hollandici et duodecimi folidii in Auctione Librorum Manoscriptorum Jacobi Golij, qva habita est Lugduni Batavorum Anno 1696. mense octobri. *pro Amicum suum Nobilissimus Juvenem Olaum Wormium Matthiæ filium hunc Codicem emit.“ Einnig stendur á 2 saurblaði: „Leges Norvegicæ et Islandicæ tum Politicæ, tum Ecclesiasticæ, charactere Islandico cntracto descriptæ.“Tímasett til c1520-1560 (sjá ONPRegistre , bls. 446), en til 16. aldar í Katalog I , bls. 435.
Árni Magnússon fékk handritið hjá Frederik Rostgaard en hann keypti það á uppboði á bókum Jacobs Goliusar í Leyden í Hollandi árið 1696 (sbr. seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 3. apríl 1975.