Óheil. Bl. 70v upprunalega autt, á því eru nú nokkur mannanöfn.
Vantar í handrit.
Upphafsstafir í mörgum litum og sumir þeirra skreyttir.
Rauðar fyrirsagnir.
Leðurband með leifum af spennum, málmur á hornum og miðjuskjöldur. Ný spjaldblöð og saurbl., gömlu spjalblöðin tekin upp og bundin framan við nýju saurblöðin. Gömlu spjaldblöðin eru bókfell með texta úr kirkjulegu latnesku handriti.
Einn seðill (145 mm x 101 mm)frá Árna Magnússyni með hendi Jóns Ólafssonar úr Grunnavík: „Þessi bók kom frá syslumanninum Markúsi Bergssyni mér til eignar 1728.“
Handritið er tímasett til um 1550 (sjá ONPRegistre , bls. 446), en til um 1500 í Katalog I , bls. 433.
Árni Magnússon fékk handritið frá Markúsi Bergssyni sýslumanni árið 1728 (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 6. febrúar 1975.