Blaðmerking er 1-70, en óvart hlaupið yfir 49.
Fremst í hdr. eru blaðkantar slitnir.
Einn seðill (147 mm x 104 mm) með hendi Árna Magnússonar: „Fengið frá Birni Halldórssyni í Ey. En hann fékk hjá síra Gunnari í Stafholti. Hefur fyrrum verið Magnúsar Sigurðssonar í Bræðratungu.“
Handritið er tímasett til loka 17. aldar í Katalog I , bls. 431.
Magnús Sigurðsson í Bræðratungu virðist fyrstur hafa átt handritið, þá Gunnar Pálsson í Stafholti, frá honum komið til Björns Halldórssonar í Ey, en hjá honum fékk Árni Magnússon handritið (sjá seðil).
Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi tók við handritinu 18. júlí 1973.